Lífið

Dan Bilzerian á Langjökli: „Þeir sögðu að það væri sumar“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Glaumgosinn skellti sér upp á jökul.
Glaumgosinn skellti sér upp á jökul. Vísir
Glaumgosinn og pókerspilarinn Dan Bilzerian lauk sínum fyrsta degi á Íslandi með stæl þegar hann skellti sér upp á Langjökul í snjósleðaferð. Birti hann mynd af ævintýrum sínum upp á jökli fullklæddur í snjógalla undir orðunum: „Þeir sögðu að það væri sumar.“

Bilzerian mætti til landsins í gær og gistir í The Diamond Suite á Hótel Keflavík sem er ein dýrasta svíta landsins.

Þar pantaði hann sér ærlegan morgunverð og var svo ánægður með hann að hann deildi mynd á Instagram-reikning sínum af herlegheitunum.

Instagram reikningur Dan er verulega vinsæll um allan heim enda er hann mikið fyrir það að pósta myndum af sjálfum sér og hálfnöktu kvenfólki að njóta góða lífsins. Ekki er vitað hvað Dan ætlar sér að gera hér á Íslandi eða hversu lengi hann ætlar að stoppa.

But it's summertime they said

A photo posted by Dan Bilzerian (@danbilzerian) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.