Lífið

Níræð kona fækkaði fötum upp á sviði og allt varð vitlaust

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hin níræða Dorothy sló í gegn.
Hin níræða Dorothy sló í gegn. Vísir/Skjáskot
Hinn níræða Dorothy Williams sló heldur betur í gegn í America's Got Talent sem sýndur var í Bandaríkjunum í gær. Hún fækkaði fötum og var send beint áfram í undanúrslitin.

Dorothy dansaði í eggjandi burlesque-stíl en hún hefur dansað frá því að hún var sautján ára gömul. Hún sagði við dómara og áhorfendur að hún hafi aldrei fengið að vera stjarna.

Það breyttist þó í gær þegar kynnir keppninnar, Nick Cannon, braut reglurnar og ýtti sjálfur á hinn svokallaða gullna hnapp sem sendir keppendur beint í undanúrslit þáttarins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×