Erlent

Náðu myndbandi af hreyfingu tungla Júpiters

Samúel Karl Ólason skrifar
Tölvuteiknuð mynd af Juno í nánd við Júpiter.
Tölvuteiknuð mynd af Juno í nánd við Júpiter. Vísir/NASA
Geimfarið Juno er nú á sporbraut um plánetuna Júpiter en ferðalagið þangað hefur tekið tæp fimm ár. Markmið verkefnisins og Juno er að rannsaka uppruna og þróun reikistjörnunnar. Júpiter er gasrisis, fimmta reikistjarnan frá Sólu og jafnframt sú lang stærsta. Frekari upplýsingar um hana má finna á Stjörnufræðivefnum.

Juno mun rannsaka kjarna plánetunnar, norðurljós, segulsvið, vatnsmang og andrúmsloft og fleira. Rannsóknirnar hefjast eftir um þrjá mánuði, samkvæmt Reuters. Rannsóknir munu standa yfir í um 20 mánuði, en gífurleg geislun lendir á Juno og er búnaður geimfarsins hýstur í sérstakri hvelfingu úr títaníum.

Það mun þó ekki duga til lengdar og búnaður mun gefa sig. Þá verður geimfarið látið brotlenda á Júpiter.

Samkvæmt vef NASA mun verkefnið leiða til mikillar aukningar í skilningi mannsins á uppbyggingu reikistjarna og hvernig þær myndast.

Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal starfsmanna NASA og Lockheed Martin þegar staðfest var að Juno var komið á sporbraut um Júpiter.



Frá því að geimfarinu var skotið á loft frá Flórída í ágúst 2011, hefur Juno ferðast 2,8 milljarða kílómetra á tæpum fimm árum. Til að komast til Júpiter þurfti fyrst að senda geimfarið innar í sólkerfið og síðan var þyngdarafl jarðarinnar notað til þess að auka hraða Juno í átt til Júpiter.

AP fréttaveitan hefur tekið saman nokkrar skemmtilegar tölur um geimfarið. Skilaboð frá Juno eru 48 mínútur og 19 sekúndur að ferðast til jarðarinnar og öfugt. 

Juno er annað geimfarið sem sent er til Júpiter, en Galileo var skotið á loft árið 1989. Það var á braut um reikistjörnuna í um tíu ár og tók myndir af henni og þremur tunglum hennar. Meðal annars fundust ummerki um haf undir ísilögðu yfirborði tunglsins Europa.

Á leiðinni til Júpiter tók Juno upp myndband sem sýnir hreyfingu tungla reikistjörnunnar. Myndbandið sem NASA gerði byrjar þann 12. júní þegar Juno var í um sextán milljóna kílómetra fjarlægð frá Júpiter. Það endar þann 29. í um fimm milljónka kílómetra fjarlægð.

Kynningarmyndband NASA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×