Færeyingar koma upp „kindamyndavélum“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. júlí 2016 15:33 Kindur á vappi í Færeyjum. vísir/getty
Nágrannar okkar í Færeyjum hafa fengið nóg af því að bíða eftir því að Google Street View komi til landsins og kortleggi vegi eyjanna. Færeyingar hafa því gripið til þess ráðs að koma sjálfir upp sínum eigin myndavélum á fimm kindum á eyjunum. Því má segja að um kindamyndavélar sé að ræða. Verkefnið var þróað á ferðamálastofu Færeyja og felur það í sér að 360-gráðu myndavélum er komið fyrir á kindunum fimm sem fara svo að vild um eyjarnar. Þær taka upp myndband á meðan af því sem fyrir augu ber sem send eru beint á ferðamálastofuna þar sem Durita Dahl Andreassen sér um að hlaða þeim inn á Google Street View. „Hér í Færeyjum þurfum við að gera hlutina á okkar eigin vegu. Við vitum að Google er mjög stórt og við erum mjög lítil svo okkur fannst rétt að gera þetta svona,“ segir Andreassen í samtali við Guardian.Í verkefninu felst bæði mikil landkynning fyrir Færeyjar auk þess sem því er ætlað að þrýsta á Google um að koma til eyjanna til að kortleggja þær með Google Street View. Um 80 þúsund kindur eru í Færeyjum en þar búa tæplega 50 þúsund manns. Á Vísindavef Háskóla Íslands kemur fram að í Færeyjum séu tvö sauðfjárkyn. Á vefnum var spurt hvort kindur í Færeyjum væru með mislangar lappir til að geta staðið betur í hlíðunum þar og var svarið eftirfarandi: „Annað er með lengri vinstri lappir, hitt með lengri hægri lappir. Það fyrra snýr alltaf hægri hliðinni upp í hlíðina, hitt vinstri hliðinni. Það fyrra fer í sífellu réttsælis kringum eyjuna, hitt rangsælis. Þetta er kallað aðlögun í þróunarfræðinni. Bændur þurfa að gæta þess vel að þessi kyn blandist ekki því að þá gætu komið út kindur sem væru jafnlangar í báðar lappir, og náttúruvalið verkar gegn því.“
Mest lesið Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Erlent Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Innlent Féll af steini við Seljalandsfoss Innlent Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Erlent Þrír í haldi í fíkniefnamáli Innlent Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Innlent Keyrt á tvo unga drengi Innlent Fleiri fréttir Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Sjá meira