Viðskipti innlent

Atvinnuleysi ekki mælst minna síðan fyrir hrun

Atli Ísleifsson skrifar
Að jafnaði voru 201.800 manns á aldrinum sextán til 74 ára á vinnumarkaði í júní 2016.
Að jafnaði voru 201.800 manns á aldrinum sextán til 74 ára á vinnumarkaði í júní 2016. Vísir/Vilhelm
Atvinnuleysi í júní var 2,3 prósent og hefur ekki mælst jafn lágt síðan í júnímánuði árið 2008 þegar það mældist 2,2 prósent.

Í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands kemur fram að að jafnaði voru 201.800 manns á aldrinum sextán til 74 ára á vinnumarkaði í júní 2016, sem jafngildir 85,3 prósenta atvinnuþátttöku. Af þeim voru 197.100 starfandi og 4.700 án vinnu og í atvinnuleit.

Samanburður mælinga fyrir júní 2015 og 2016 sýnir að atvinnuþátttakan minnkaði um 1,3 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði um 1.100 manns og hlutfall þeirra af vinnuaflinu minnkaði um 0,6 prósentustig, að því er segir á vef Hagstofu Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×