Sextíu látnir í sprengjuárás í mótmælagöngu í Kabúl Atli Ísleifsson skrifar 23. júlí 2016 13:30 Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni. Vísir/AFP
Sextíu manns hið minnsta eru látnir og rúmlega tvö hundruð særðir eftir sjálfsvígssprengjuárás í mótmælagöngu í afgönsku höfuðborginni Kabúl fyrr í dag. Talsmaður afganska heilbrigðisráðuneytisins greinir frá þessu í samtali við Reuters. Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni. Þúsundir mótmælenda, aðallega Hasara og sjítar, höfðu komið saman til að krefjast þess að spennulína yrðu lögð um héraðið Bamiyan, einu vanþróaðasta héraði Afganistan. Afganska ríkisstjórnin var með á dagskrá að leggja línuna um héraðið, en hafði nýverið lýst því yfir að hætt yrði við verkefnið í sparnaðarskyni. Jawad Naji, einn skipuleggjenda göngunnar, segist hafa verið á meðal mótmælenda þegar hann heyrði mikla sprengingu. „Mjög margir eru látnir eða særðir. Ég er á áfalli,“ segir Naji í samtali við AFP. Í frétt SVT kemur fram að Hasarar eru þriðja stærsta þjóðarbrotið í Afganistan og hafa um áratuga skeið sætt ofsóknum af öðrum hópum.Uppfært 15:45: Talsmaður afganskra yfirvalda segir að áttatíu manns hafi farist í árásinni og 231 særst.
Mest lesið Risaþota flaug í lágflugi yfir Reykjavík Innlent Leita tveggja vegna banaslyssins á Sæbraut Innlent Stóra sánumálið: „Örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi ekki viðgangast í öðrum klefum“ Innlent Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Erlent Ótrúverðugar skýringar í nauðgunarmáli Innlent Herbergi fylltist af vatni upp að hurðarhúni Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Erlent Heilsugæslan lokar fyrir aðgengi Samgöngustofu að sjúkraskrám Innlent Féll af steini við Seljalandsfoss Innlent Fleiri fréttir Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Sjá meira
Stóra sánumálið: „Örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi ekki viðgangast í öðrum klefum“ Innlent
Stóra sánumálið: „Örugglega ýmislegt viðgengist sem myndi ekki viðgangast í öðrum klefum“ Innlent