Lífið

Stormasamt samband

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Vinskapur Taylor Swift og Kanye West byrjaði ekki á fullkominn hátt. Hann ruddist upp á svið til hennar þegar hún tók á móti verðlaunum árið 2009. Síðan þá hefur vináttan farið upp og niður en eftir atburði seinustu daga þá er óvíst að þau muni nokkurn tíman talast við aftur.

Taylor Swift á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en að henni berast skot úr öllum áttum. Í seinustu viku gerði hún það opinbert að hún hafi skrifað textann fyrir lagið „This is what you came for“ sem er með Calvin Harris, fyrrverandi kærasta hennar, og Rihanna. Calvin var allt annað en sáttur með það og sagði að þetta væri hennar leið til þess að láta hann líta illa út og grafa undan honum. Þó fór fólk að gefa Taylor Swift illt auga og efast um hreinskilni hennar.

Um helgina birti Kim Kardashian myndband af símtali milli Kanye og Taylor þar sem hún gefur honum samþykki til að syngja um sig í laginu „Famous“ sem kom í febrúar á þessu ári. Eftir að það kom út á sínum tíma birti hún tilkynningu þess efnis að hún hafi ekki haft neina vitneskju um lagið og hún hefði ekki samþykkt textann þar sem Kanye hafði aldrei samband við hana. Kanye og Taylor hafa verið að rífast um málið síðan þá en flestir hafa trúað henni fram yfir honum.

Myndbandið sem Kim birti var því algjör skellur fyrir Taylor og hefur fólk verið að gagnrýna Taylor fyrir að ljúga upp á Kanye í allan þennan tíma. Það verður gaman að sjá hvort að Taylor nái að rífa sig upp úr þessari lægð og semja nokkur lög um reynsluna.

13.september 2009

Kanye West ryðst upp á svið til Taylor Swift á MTV Video Music Awards. Hún var þá að taka á móti verðlaunum fyrir besta kvenmanns tónlistarmyndbandið. Kanye reif af henni míkrófóninn og sagði að Beyonce hefði frekar átt að fá verðlaunin fyrir myndbandið við Singles Ladies.





14.september 2009

Daginn eftir atvikið fræga mætti Kanye í spjallþáttinn til Jay Leno. Þar settist hann niður og baðst innilegrar afsökunar á uppátækinu. Hann viðurkenndi meðan annars að þetta hafi verið dónalegt og hann muni ekki reyna að réttlæta það.







19.september 2009

Taylor Swift talar í fyrsta skiptið um uppátæki Kanye. Þá segir hún að henni hafi brugðið töluvert og það hafi verið erfitt fyrir hana að stíga svo á svið fimm mínútum seinna til þess að taka lagið. Hún staðfesti einnig að Kanye hefði ekki beðið sig persónulega afsökunar.

September 2010

Kanye biður Taylor afsökunar á Twitter. Hann segir að hún hafi ekki átt þetta skilið og vonaðist til þess að þau gæti orðið vinir.

Febrúar 2015

Kanye og Taylor sjást knúsast og spjalla á Grammy verðlaununum. Nokkrum dögum seinna sáust þau borða kvöldmat saman í New York. Þá hefur vinskapurinn greinilega verið orðinn mikill og öll fyrri mál fyrirgefin.





Ágúst 2015

Taylor veitir Kanye heiðursverðlaun á MTV Video Music Awards, sömu verðlaunahátíð og atvikið kom upp á árið 2009.

13.febrúar 2016

Kanye West frumsýnin nýjustu breiðskífu sína, The Life of Pablo. Á einu laginu þar, sem kallast Famous, syngur Kanye um Taylor. Þar syngur hann „ég held að ég og Taylor gætum ennþá stundað samfarir, ég gerði þessa tík fræga“. Teymið hennar Taylor var fljótt að koma með yfirlýsingu um að hún hafi ekki samþykkt textann og að Kanye hafi ekki látið hana vita um að hann væri að fara að syngja um hana.

15.febrúar 2016

Taylor tekur á móti verðlaunum á Grammy hátíðinni. Í þakkarræðunni skýtur hún hart á Kanye og segir meðal annars „á lífsleiðinni mun fólk reyna að grafa undan þér og eigna sér heiðurinn af velgengi þinni“.







Júní 2016

Í viðtali við GQ segir Kim Kardashian að Taylor hafi vitað af textanum og að það sé til upptaka til þess að sanna það.

17.júlí 2016

17. júlí 2016

Í nýjum þætti af Keeping up With the Kardashians sést Kim vera að ræða þessi mál við móður sína, Kris Jenner. Strax eftir þáttinn sýnir Kim upptökuna umræddu á snapchat aðgangnum sínum. Í kjölfarið birti Taylor skilaboð til aðdáenda sinna á Instagram. Þar segir hún að í myndbandinu hafi ekki komið fram að Kanye muni kalla hana „tík“ í laginu og að hún vilju ekki taka þátt í þessum sirkus lengur sem hún flæktist nauðug í árið 2009.



Hvað gerðist í kjölfarið?

Khloe Kardashian tekur upp hanskann fyrir systur sinni á Twitter og segir að það enginn fái að ljúga upp á Kanye.

Selena Gomez gagnrýnir þessa miklu umræðu um málið á Twitter og spyr afhverju fólk tali ekki um eitthvað mikilvægara. Þá skýtur blaðamaður LA Journal á hana og segir hana aldrei vilja koma með athugasemd um nein mikilvæg málefni líðandi stundar og að hún taki aldei afstæðu opinberlega með neinu eins og „black lives matter“ sem hefur verið mikið í umræðunni seinustu vikurnar í Bandaríkjunum.

Demi Lovato, Pharrell Williams og Katy Perry taka öll afstöðu með Kanye og Kim með því að líka við twitter færslur sem gagnrýna Taylor.

Zendaya, sem var áður í stelpugenginu hennar Taylor og lék í tónlistarmyndbandinu við Bad Blood, líkar einnig við færslu sem að gagnrýnir Taylor. Það er því víst að hún sé ekki með Taylor í liði lengur, eins og flestir.


Tengdar fréttir

James Corden lenti líka illa í Kanye West

Í vikunni kom fram myndband sem Kim Kardashian setti inn á Snapchat sem virðist sýna að Taylor Swift hafi logið um stóra lagamál hennar og Kanye West.

Calvin Harris gerir lag um svikula kærustu

Tilvísanir í samband Tom Hiddleston og Taylor Swift eru í textanum og útlit fyrir að það hafi verið byrjað áður en Swift hætti með Harris.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×