Íslenski boltinn

Jóhann Laxdal: Þarf bara að vera á réttum tíma á toppnum

ingvar haraldsson skrifar
Jóhann Laxdal segir Stjörnuna ætla að vera á toppnum á réttum tíma, þegar deildinni lýkur.
Jóhann Laxdal segir Stjörnuna ætla að vera á toppnum á réttum tíma, þegar deildinni lýkur.
Jóhann Laxdal, varnarjaxl Stjörnunnar, segir að lið hans hafi verið ágætt á köflum í kvöld en smá ákefð hefði vantað inn í teignum eftir 1-1 jafntefli við Þrótt í kvöld.

Liðið hafi hins vegar misst dampinn í seinni hálfleik eftir að hafa látið hann ganga vel framan af leik. Ekki hafi gengið nógu vel að opna vörn Þróttar til að fá afgerandi færi.

Jóhann segir það viss vonbrigði að hafa ekki náð toppsætinu eftir tap FH í kvöld en sigur hefði fleytt Stjörnunni í efsta sæti deildarinnar. „Það eru alltaf vonbrigði að komast ekki á toppi þegar tækifæri er til en það þarf bara að vera á réttum tíma á toppnum og það er það sem við ætlum okkur að gera.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×