Viðskipti innlent

Síminn hafnar því í yfirlýsingu að hafa keypt ljósvakamiðla 365

Atli Ísleifsson skrifar
Síminn hafnar fréttunum á vef Eiríks Jónssonar.
Síminn hafnar fréttunum á vef Eiríks Jónssonar. Vísir/Vilhelm
Síminn hafnar því að hafa keypt ljósvakamiðla 365, líkt og fram kemur á vef Eiríks Jónssonar blaðamanns.

Í yfirlýsingu frá Símanum sem send var út undir kvöld kemur fram að viðræður þessa efnis standi ekki yfir.

Yfirlýsingin í heild sinni:

„Síminn er skráð félag á hlutabréfamarkaði með upplýsingastefnu í samræmi við þá stöðu sína. Fyrirtækið tjáir sig því ekki um getgátur og orðróm. Vegna fullyrðinga á opinberum vettvangi í dag viljum við hins vegar taka fram að Síminn hefur ekki keypt ljósvakamiðla 3​65. Viðræður standa ekki yfir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×