Enski boltinn

Benítez byrjar illa í B-deildinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rafa Benítez og aðstoðarmenn hans horfðu upp á sitt lið tapa fyrir Fulham í kvöld.
Rafa Benítez og aðstoðarmenn hans horfðu upp á sitt lið tapa fyrir Fulham í kvöld. vísir/getty
Fulham bar sigurorð af Newcastle United í upphafsleik ensku B-deildarinnar í fótbolta í kvöld. Lokatölur 0-1, Fulham í vil.

Matt Smith skoraði eina mark leiksins á lokamínútu fyrri hálfleiks og sá til þess að Rafa Benítez og lærisveinar hans sneru tómhentir aftur til Newcastle.

Smith reis þá hæst í teignum og skallaði boltann framhjá Matz Sels í marki Newcastle eftir hornspyrnu Tom Ciarney.

Lífið í B-deildinni byrjar því ekki alltof vel hjá Newcastle sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

Keppni í B-deildinni heldur áfram á morgun en þá fara fram níu leikir. Íslendingaliðin Cardiff City, Wolves og Bristol City verða þá m.a. í eldlínunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×