Lífið

Ozzy Osbourne leitar sér hjálpar vegna kynlífsfíknar

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Ozzy og Sharon á meðan allt lék í lyndi.
Ozzy og Sharon á meðan allt lék í lyndi. Vísir/Getty
Rokkarinn Ozzy Osbourne sem er 67 ára gamall leitar sér nú aðstoðar vegna kynlífsfíknar. Hann viðurkennir að hafa átt í kynferðislegu sambandi við nokkrar konur síðastliðin ár sem hafi leitt til þess að eiginkona hans Sharon Osbourne hafi flutt út af heimili þeirra.

Ozzy greindi frá þessu í fréttatilkynningu sem hann gaf út í kjölfar viðtals sem People Magazine birti við hárgreiðslukonuna Michelle Pugh. Þar fullyrti hún að hafa átt í ástarsambandi við rokkarann síðastliðin fjögur ár. Hún sagði sambandið hafa verið alvarlegt en því neitar Ozzy alfarið.

„Mér þykir það miður að ungfrú Pugh hafi tekið kynferðis samband okkar úr samhengi,“ sagði Ozzy meðal annars í tilkynningunni. Þar bað hann líka allar hinar konurnar sem hann hefur sofið hjá síðustu árin afsökunar á hegðun sinni.

Ozzy sagðist hafa leitað sér hjálpar eftir að fjölmiðlar greindu frá framhjáhaldi hans og segist vera í meðferð vegna fíknar sinnar.

Gift í 34 ár

Sharon og Ozzy hafa verið gift frá árinu 1982 en hún hefur ekki enn sótt um lögskilnað þrátt fyrir hjúskaparbrotin. Í nýlegu viðtali í bandarískum spjallþætti sagðist Sharon ekki hafa hugmynd um hvort hjónabandi þeirra væri að ljúka eður ei.

Af tilkynningu Ozzy að dæma lítur þó út fyrir að Sharon hafi fyrirgefið eiginmanni sínum því þar segir hann;

„Ég þakka Guði fyrir þann stuðning sem mín stórkostlega eiginkona hefur sýnt mér.“


Tengdar fréttir

Sharon Osbourne verður í dómarateyminu í X-Factor

Simon Cowell hefur nú staðfest að Sharon Osbourne verði dómari á nýjan leik í raunveruleikaþáttunum X-Factor Uk en hún var hluti af upprunalegu dómurunum í þáttunum sem hófu göngu sína árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.