Innlent

Uppvaskið og fjölskyldulífið óbreytt hjá nýjum forsetahjónum

Ásgeir Erlendsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og eiginkona hans, Eliza Reid, fóru í sína fyrstu embættisheimsókn á Sólheima í Grímsnesi í dag. Þau segjast vera að venjast nýjum hlutverkum, uppvaskið og hefðbundin fjölskylduverk séu ennþá hluti af dagskránni.

„Þetta er aðeins búið að breytast og svo ekki. Við erum ekki búin að flytja ennþá. Við erum enn í sama húsi og á mánudaginn fórum við heim að þvo diskana sem voru í eldhúsinu eins og alltaf. Skutlaði börnunum á æfingu og í skólann. En það var bílstjóri sem kom og sótti Guðna.“ Sagði Eliza Reid, forsetafrú. 

„Auðvitað breytist daglegt líf umtalsvert en sólin kemur á sama tíma upp fyrir mig og þig.“ Sagði Guðni Th Jóhannesson, forseti Íslands.

Rætt var við forsetahjónin í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×