Viðskipti innlent

Þorsteinn nýr upplýsingafulltrúi Landsbjargar

Atli Ísleifsson skrifar
Þorsteinn G. Gunnarsson.
Þorsteinn G. Gunnarsson. Mynd/Landsbjörg
Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hann hefur þegar hafið störf.

Í tilkynningu frá félaginu segi rað auk samskipta við fjölmiðla muni Þorsteinn vinna að margvíslegum verkefnum fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg sem lúta að málefnum félagsins og útgáfumálum.

„Þorsteinn hefur víðtæka reynslu af almannatengslum og kynningarmálum eftir að hafa starfað sem ráðgjafi í almannatengslum í 18 ár, lengst af hjá KOM almannatengslum. Þar áður starfaði hann sem blaðamaður, ritstjóri og dagskrárgerðarmaður,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×