Rannsaka sjálfsvíg stúdenta við háskólann í York Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 25. september 2016 22:42 Háskólinn í York. Vísir/Getty
Borgaryfirvöld í York á Englandi hafa ákveðið að rannsaka sjálfsvíg fjögurra stúdenta sem allir námu við háskólann í borginni. Saher Ahmad, 20 ára, Daniel Pinfold, 23 ára, Christopher Walsh, 21 árs og Azusa Nose, 23 ára tóku öll sitt eigið líf á meðan þau stunduðu nám við Háskólann í York. Beðið er eftir niðurstöðum rannsóknar um fimmta tilfellið.Fauzia Zaheer, móðir Saher Ahmad, segir að dóttir sín hafi átt framtíðina fyrir sér, en hún hafði áður reynt að taka sitt eigið líf og hafði verið í sálfræðimeðferð vegna þunglyndis í nokkur ár áður en hún hóf nám við skólann. Zaheer segir að dóttir sín hafi eingöngu fengið einn ráðgjafartíma eftir fyrri tilraun sína og að fjölskylda hennar hafi ekki verið látin vita af atvikinu. Þetta kemur fram á vef The Independent. Eftirspurn nemenda skólans eftir sálfræðiráðgjöf hefur aukist um fimmtíu prósent á síðustu fimm árum. Í skýrslu frá maí síðastliðnum kom fram að helmingur allra tilfella sem kallað var til aðstoðar sjúkrabíls frá háskólanum voru vegna sjálfsskaða eða sjálfsvígstilrauna. Yfirvöld háskólans hyggjast leggja um 500 þúsund pund í geðheilbrigðisþjónustu á næstu þremur árum. Upphæðin nemur um 74 milljónum íslenskra króna. Þá segjast yfirvöld hafa farið yfir alla verkferla háskólans hvað varðar geðheilbrigðisþjónustu í ljósi aukins álags á nemendum.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Hálft landið án rafmagns Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Fleiri fréttir Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Sjá meira