Viðskipti innlent

Sala á mat og drykk í örum vexti

Sæunn Gísladóttir skrifar
Í júlí síðastliðinn jókst velta mat og drykkjarvöru í dagvöruverslun um 8,6 prósent frá sama mánuði í fyrra.
Í júlí síðastliðinn jókst velta mat og drykkjarvöru í dagvöruverslun um 8,6 prósent frá sama mánuði í fyrra. Vísir/KTD
Vaxandi velmegun og aukinn fjöldi ferðamanna hafa afar jákvæð áhrif á verslun um þessar mundir. Mikill vöxtur hefur verið í sölu verslana með mat og drykkjarvöru það sem af er ári. Í júlí síðastliðinn jókst veltan í dagvöruverslun um 8,6 prósent frá sama mánuði í fyrra, samkvæmt tölum frá Rannsóknasetri verslunarinnar sem er mikið í þessari tegund verslunar þar sem sveiflur eru alla jafna litlar.

Erlendir ferðamenn sem hingað koma verja stærstum hluta þess sem þeir kaupa í verslunum í matvöruverslun. Þá telja verslunarmenn að vaxandi kaupmáttur almennings skili sér meðal annars í auknum matarinnkaupum. Sömu þróun má sjá í sölu áfengisverslana, þar sem aukning á veltu á milli ára var 17 prósent.

Þá er athyglisvert að sala á húsgögnum var rúmlega þriðjungi meiri í júlí síðastliðnum en í júlí í fyrra. Þetta er langmesti vöxtur í húsgagnasölu það sem af er ári, þegar borin er saman velta sambærilegra mánaða milli ára. Júlí er venjulega ekki mjög veltumikill mánuður hjá húsgagnaverslunum, en nú bregður öðruvísi við.

Tölvusala dregst saman

Þegar bornar eru saman veltutölur í raf-, síma- og tölvuverslunum koma í ljós töluvert mismunandi sveiflur milli vörutegunda. Á meðan sala snjallsíma jókst í síðast mánuði um 16 prósent frá sama mánuði í fyrra, dróst saman sala á tölvum um 18,5 prósent á sama tímabili. Líklega myndu þó einhverjir telja snjallsíma vera tölvur og því um að ræða sölu á sömu tækjum en í mismunandi mynd.  Þá var í mánuðinum mun meiri veltuaukning í sölu á stórum raftækjum til heimilisnota en hinum minni.

Minni fata- og skósala

Ein undantekning er á hinni auknu veltu í íslenskri verslun í júlí; sem er fata- og skóverslun. En velta í þessum vöruflokkum var minni í ár en í fyrra. Verð á júlíútsölum á fötum í ár var 6,6 prósent lægra en í sama mánuði í fyrra og 0,6 prósent lækkun var á verði á skóm. Samdráttur í fatasölu nam 3,3 prósent og 3,1 prósent minni sala var í skóverslun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×