Fótbolti

Kolbeinn á leið til Galatasary

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kolbeinn skoraði tvö mörk á EM í Frakklandi.
Kolbeinn skoraði tvö mörk á EM í Frakklandi. vísir/vilhelm
Samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum er landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson á leið til Galatasary á láni frá Nantes.

Um er að ræða lánssamning út tímabilið en talað er um að Kolbeinn komi til Istanbúl á morgun.

Kolbeinn gekk til við Nantes fyrir síðasta tímabil en skoraði aðeins þrjú mörk í 26 deildarleikjum fyrir franska liðið í fyrra.

Galatasary, sem er sigursælasta lið Tyrklands, olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili þar sem liðið endaði í 6. sæti tyrknesku deildarinnar og komst ekki í Evrópukeppni.

Galatasary er búið að vinna báða leiki sína í tyrknesku deildinni til þessa. Næsti leikur liðsins er gegn Kayserispor 10. september næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×