Fentanýl gengur kaupum og sölum á Facebook Nadine Guðrún Yaghi skrifar 27. ágúst 2016 08:00 Fentanýl er margfalt sterkara en heróín og morfín.
Fentanýl er rótsterkt lyfseðlisskylt verkjalyf en misnotkun þess hefur færst í aukana undanfarið og þá sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem rekja má tugi dauðsfalla til notkunar lyfsins síðustu mánuði. Á Íslandi má rekja tvö dauðsföll í ár til lyfsins að frátöldu atviki um síðustu helgi ef í ljós kemur að lyfið var raunverulega dánarorsökin.Miklu sterkara en heróín Lyfið er hundrað sinnum sterkara en morfín og fimmtíu sinnum sterkara en heróín. Lyfið hefur slævandi áhrif og er ávanabindandi. Lyfið er í plástursformi en er einnig til í töfluformi, nefúða og kristöllum. Þegar lyfið er misnotað er það reykt með efnum á borð við marijúana eða að því er sprautað í æð.Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri lyfjamála hjá embætti landlæknis.Lyfið er ætlað fólki sem glímir við langvinna verki og er til að mynda notað af krabbameinssjúklingum við miklum verkjum, sem og í líknandi meðferð. Lyfinu fylgja hættulegar aukaverkanir og sérstaklega ef áfengis er neytt samhliða. Þá getur það hamlað því mikið að súrefni komist til heila. Ef of stór skammtur er tekinn hættir einstaklingurinn að anda og fer þar af leiðandi í hjartastopp. Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis á notkun lyfsins eingöngu að vera stýrt af lækni. Embættið hefur áhyggjur af misnotkun lyfsins hér landi. „Ef andlát þessa unga manns um helgina má rekja til eitrunar af völdum verkjalyfja þá er það alls ekki einsdæmi heldur eitt af mörgum dauðsföllum sem við sjáum þar sem ungir einstaklingar deyja vegna misnotkunar ávanabindandi lyfja,“ segir Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri lyfjamála hjá embættinu. Árið 2015 fengu 523 einstaklingar ávísað fentanýli á Íslandi en allir voru þeir að glíma við langvarandi eða erfiða verki. „Til samanburðar fengu rúmlega 24.000 einstaklingar ávísað parkódín forte á sama tíma,“ segir Ólafur.FentanylAf einstökum morfínlyfjum sem eru misnotuð má nefna Contalgin, Oxycontin, Ketogan, Tramadol, Buprenorfin og fentanýl. Þessi lyf virka mismunandi á ópíóða viðtaka í heila ásamt því að líkaminn meðhöndlar þau á mismunandi hátt. Verkunin er því mismunandi milli lyfja og getur þar að auki verið mismunandi eftir einstaklingum. „Að einstaklingar séu að taka þessi lyf sjálfir og jafnvel á annan hátt en til er ætlast er stórhættulegt og bendir til þess að þeir viti ekki um hættuna,“ segir Ólafur.Hvernig kemst lyfið í umferð? „Einhver hópur fólks gerir sér upp veikindi til að fá ávísað ávanabindandi lyfjum og kemur lyfjunum í sölu. Við höfum heyrt um alls konar leiðir en flestar ábendingar sem við höfum fengið eru um einstaklinga sem selja á Facebook. Við höfum líka heyrt um einstaklinga sem selja lyf annarra og þá frá nokkrum sjúklingum. Þegar grunur er um misnotkun lyfja þá reyna læknar að fylgjast með því hvort viðkomandi sjúklingur sé í raun og veru að taka inn lyfið en það getur verið erfitt að sannreyna að svo sé,“ segir Ólafur. Þannig telur hann að ávanabindandi lyf sem fari í ólöglega sölu séu lyf af markaði hér á landi Viðmælendur Fréttablaðsins sem þekkja til í heimi fíkniefnanna útskýra að það sé vinsælt að „krossa“. Þá séu notuð saman örvandi lyf og sljóvgandi lyf á borð við fentanýl.„Tollurinn finnur alls konar efni. Við höfum ekki upplýsingar um að það séu að finnast læknalyf í þessu magni sem gæti skýrt þetta framboð,“ segir hann. Ólafur útskýrir að Ísland hafi verið hæst í ávísunum á sterkum verkjalyfjum og fleiri lyfjum af öllum Norðurlöndunum árið 2013. Nýjar tölur fyrir ópíóða bendi til þess að notkun sé enn að aukast. „Þessar tölur og samanburður við útlönd benda til þess að það þurfi að taka ávísanir margra ávanabindandi lyfja til endurskoðunar, sérstaklega í ljósi þess ástands sem virðist vera á fíkniefnamarkaði hér á landi þar sem lyfseðilsskyld lyf leika lykilhlutverk,“ segir Ólafur. Runólfur tekur undir með Ólafi og segir að lyfið komist í sölu á svörtum markaði í gegnum einstaklinga sem fá lyfinu ávísað frá lækni. Þó sé eitthvað um að lyfinu sé smyglað til landsins „Þetta eru bæði plástrar sem er verið að ávísa hér á landi en svo erum við líka að heyra að þetta komi erlendis frá en þá í kristallaformi,“ segir Runólfur og bætir við að lögreglan hafi þó ekki náð haldi á lyfjum sem komi þannig. Bæði Ólafur og Runólfur telja að lyfið hafi gengið kaupum og sölum á samfélagsmiðlinum Facebook. „Hluti af þessum síðum sem við lokuðum fyrir skömmu síðan var með læknadóp,“ segir Runólfur.Slær mann alveg útÍ grein The New York Times um lyfið lýsir 46 ára fíkill áhrifum fentanýls. „Maður getur ekki hreyft sig. Þegar maður sprautar sig með fentanýli finnur maður áhrifin áður en maður hefur klárað að sprauta sig,“ sagði fíkillinn og bætti við: „Þetta slær mann alveg út.“Vinsælt að krossaViðmælendur Fréttablaðsins sem þekkja til í heimi fíkniefnanna útskýra að það sé vinsælt að „krossa“. Þá séu notuð saman örvandi lyf og sljóvgandi lyf á borð við fentanýl. „Þetta er þekkt í þessum heimi. Mjög margir sem eru langt leiddir nota bæði saman. Örvandi lyf eru til dæmis kókaín eða amfetamín,“ segir Runólfur.
Tengdar fréttir Fentanýl á Menningarnótt: Lögreglu reynist erfitt að hafa uppi á vitnum að atburðum næturinnar Um kunnuglegt stef er að ræða í málum þar sem grunur leikur á um ofneyslu fíkniefna. 26. ágúst 2016 14:45 Missti son sinn vegna misnotkunar á morfínplástri: „Hann var stóra ástin í mínu lífi“ Sonur Guðnýar Rannveigar Reynisdóttur var á biðlista eftir meðferð á Vogi þegar hann lést. 27. ágúst 2016 07:00 Gísli Pálmi beitti skyndihjálp á vin sinn Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson beitti skyndihjálp á vin sinn er hann missti meðvitund í miðbænum aðfaranótt sunnudags. 25. ágúst 2016 19:47 Mest lesið Hafi ekki verið pínd dögum saman heldur vaknað með áverkana Innlent Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent Ymur hafi stungið móður sína minnst 22 sinnum Innlent Býður upp á nýtt loforð fyrir Flokk fólksins til að svíkja Innlent Einn af hverjum 264 sem tóku ADHD lyf fór í fyrsta geðrofið innan árs Innlent Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags Erlent Björn Þorláks segir sig úr Flokki fólksins Innlent Starfsfólk skólanna óttist kærur eða alvarleg viðbrögð foreldra Innlent Trump ósáttur við bón biskups um miskunn Erlent Yfirmaður strandgæslunnar látinn fjúka Erlent Fleiri fréttir Óhugnanlegt að hugsa til þess ef allt hefði ekki farið á besta veg Opið málþing Læknadaga: Næring allra, sérstaklega barna - fjárfesting fyrir framtíðina „Erfiðara að komast að rót vandans með þessum krökkum“ Efnaslys varð í grunnskóla í Reykjanesbæ Engar töfralausnir við hegðunarvanda barna Minkurinn dó vegna fuglaflensu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn bjartsýnir eftir fund dagsins Af þingi í skólamál á Austurlandi Hafi ekki verið pínd dögum saman heldur vaknað með áverkana Efast um niðurstöðu héraðsdóms í Hvammsvirkjunarmáli Björn Þorláks segir sig úr Flokki fólksins Hætta rannsókn á skipverjunum á Hugin „Ég held að það sé full ástæða til að óttast“ Ymur hafi stungið móður sína minnst 22 sinnum Einn af hverjum tuttugu fór í ljós á síðustu tólf mánuðum Bar fyrir sig að barnið hefði byrjað Starfsfólk skólanna óttist kærur eða alvarleg viðbrögð foreldra Fyrrverandi bæjarstjóri Árborgar tekur við í Grímsnes- og Grafningshreppi Kæra lögð fram vegna grænu skemmunnar Einn af hverjum 264 sem tóku ADHD lyf fór í fyrsta geðrofið innan árs Agaleysi í skólum og geðrof tengt ADHD lyfjum Býður upp á nýtt loforð fyrir Flokk fólksins til að svíkja Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ „Gímaldið“ á borði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Heitar umræður um lokun flugbrautar Eldur kviknaði í pappagámi í Skeifunni Prammi á ferðinni á Ölfusá vegna nýrrar brúar Sýklalyfjaónæmi raunveruleg ógn Kristrún væntir áframhaldandi náinna samskipta við Bandaríkin 155 milljónir til sviðslistaverkefna Sjá meira
Fentanýl á Menningarnótt: Lögreglu reynist erfitt að hafa uppi á vitnum að atburðum næturinnar Um kunnuglegt stef er að ræða í málum þar sem grunur leikur á um ofneyslu fíkniefna. 26. ágúst 2016 14:45
Missti son sinn vegna misnotkunar á morfínplástri: „Hann var stóra ástin í mínu lífi“ Sonur Guðnýar Rannveigar Reynisdóttur var á biðlista eftir meðferð á Vogi þegar hann lést. 27. ágúst 2016 07:00
Gísli Pálmi beitti skyndihjálp á vin sinn Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson beitti skyndihjálp á vin sinn er hann missti meðvitund í miðbænum aðfaranótt sunnudags. 25. ágúst 2016 19:47
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent