Viðskipti innlent

Skila viðskiptavinum ólöglegum tollum með nautalundum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Hagkaup selur nú erlendar nautalundir á lægra verði en ella þar sem Hæstiréttur dæmdi ríkið til að endurgreiða ólöglega innflutningstolla. Bónus hefur selt kjúklinga á lægra verði undir sömu formerkjum.
Hagkaup selur nú erlendar nautalundir á lægra verði en ella þar sem Hæstiréttur dæmdi ríkið til að endurgreiða ólöglega innflutningstolla. Bónus hefur selt kjúklinga á lægra verði undir sömu formerkjum. Vísir/hanna
„Við munum halda þessu áfram,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, sem um þessar mundir er að koma yfir 400 milljóna króna tollaendurgreiðslu frá ríkinu í hendur viðskiptavina.

Í verslunum Hagkaups má nú sjá skilti þar sem kynnt er betra verð vegna endurgreiðslu ólöglegra gjalda. Er þar verið að auglýsa erlendar nautalundir.

Forsöguna má rekja til dóms Hæstaréttar frá í febrúar vegna tolla af innfluttum landbúnaðarvörum. Hagar höfðuðu mál gegn ríkinu þar sem fyrirtækið taldi útboð á svokölluðum frítöllum vera ígildi skattlagningar. Högum var dæmd 245 milljóna króna endurgreiðsla sem varð yfir 400 milljónir króna að sögn Finns Árnasonar þar sem ríkið hélt áfram að innheimta gjöldin eftir að málið var höfðað.

Finnur segir að þótt að í gildi hafi verið samningar um fríkvóta þar sem gert sé ráð fyrir að landbúnaðarvara sé flutt til landsins á lægri gjöldum heldur en „þessum venjulegu ofurtollum“ þá hafi yfirvöld ávalt reynt að koma í veg fyrir að það skilaði sér á lægra verði til neytenda.

„Við fórum í mál þar sem við töldum þetta í rauninni ólöglega skattheimtu og unnum það mál í Hæstarétti. Þá gáfum við það út og höfum kynnt ítrekað að við myndum skila þessum upphæðum til okkar viðskiptavina þar sem gjaldtakan hafi verið ólögleg,“ segir Finnur.

Auk þess sem nú eru boðnar nautalundir á niðursettu verði hefur Bónus, sem einnig er í eigu Haga, í nokkra mánuði selt frosna kjúklinga og kjúklingarbringur á lægra verði af sömu ástæðu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×