Fótbolti

Kolbeinn mættur til Tyrklands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kolbeinn var frábær með íslenska landsliðinu á EM í sumar.
Kolbeinn var frábær með íslenska landsliðinu á EM í sumar. vísir/getty
Kolbeinn Sigþórsson er lentur í Istanbúl en það kemur fram í tyrkneskum fjölmiðlum. Fótbolti.net greindi einnig frá því í dag.

Tyrkneskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Kolbeinn væri á leið til Galatasaray á lánssamningi frá Nantes í Frakklandi, líkt og Vísir fjallaði um.

Sjá einnig: Kolbeinn á leið til Galatasaray

Kolbeinn skoraði þrjú mörk í 26 leikju með Nantes á síðasta tímabili en Galatasaray hafnaði í sjötta sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar í vor og spilar ekki í Evrópukeppni í vetur.


Tengdar fréttir

Kolbeinn á leið til Galatasary

Samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum er landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson á leið til Galatasary á láni frá Nantes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×