Enski boltinn

Wenger: Wilshere er í heimsklassa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wenger og Wilshere.
Wenger og Wilshere. vísir/getty
Þó svo Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafi lánað Jack Wilshere til Bournemouth þá segist hann ekkert efast um hæfileika Wilshere.

Wilshere hefur verið mikið meiddur síðustu ár og ætlar að reyna að ná sér aftur á strik hjá Bournemouth í vetur. Þar er minni samkeppni um sæti í liðinu.

„Ég vona að Wilshere verði hjá okkur allan sinn feril. Hann er heimsklassaleikmaður. Hann þarf ekki að sanna neitt fyrir mér. Hann þarf bara að komast aftur í leikform“ sagði Wenger.

Wilshere er orðinn 24 ára gamall og hefur spilað yfir 100 leiki fyrir Arsenal og 34 landsleiki fyrir England.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×