Fótbolti

Rodgers stjóri mánaðarins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rodgers brosir breitt þessa dagana.
Rodgers brosir breitt þessa dagana. vísir/getty
Brendan Rodgers, stjóri Celtic, hefur fengið flugstart i Skotlandi og var í dag valinn stjóri mánaðarins í ágúst.

Celtic er á toppi skosku deildarinnar, venju samkvæmt, þó svo liðið sé búið að spila leik minna en næstu lið.

Það var bras á Celtic í forkeppni Meistaradeildarinnar og gustaði þá aðeins um Rodgers.

Sá stormur er nú genginn yfir og Celtic menn horfa bjartsýnir fram á veginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×