Enski boltinn

Bendtner aftur í enska boltann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bendtner í leik með Wolfsburg.
Bendtner í leik með Wolfsburg. vísir/getty
Daninn stóri Nicklas Bendtner er mættur til Englands á ný en hann samdi við Nott. Forest til tveggja ára.

Hinn 28 ára gamli Bendtner var samningslaus en hann var síðast á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi.

Hann var hjá Arsenal frá 2005 til 2014 og skoraði þá 45 mörk í 171 leik fyrir félagið.

Bendtner hefur einnig spilað með Sunderland, Birmingham og Juventus.

Alls hefur Bendtner spilað 72 landsleiki fyrir Danmörk og skorað í þeim leikjum 29 mörk.

Forest á leik gegn Arsenal í bikarnum síðar í þessum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×