Enski boltinn

Mkhitaryan tæpur fyrir Manchester-slaginn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Henrikh Mkhitaryan.
Henrikh Mkhitaryan. vísir/getty
Armeninn Henrikh Mkhitaryan er í kapphlaupi við tímann en hann vonast til að geta tekið þátt í stórleik Man. Utd og Man. City.

Mkhitaryan meiddist í landsleik Armeníu og Tékklands í síðustu viku og gat því ekki spilað með sínum mönnum er þeir töpuðu gegn Dönum á Parken.

Hann meiddist á læri og í fyrstu var talið að hann yrði frá í tíu daga.

Læknar og sjúkraþjálfar United gera nú allt hvað þeir geta til þess að koma honum í leikhæft stand fyrir laugardaginn.

Sjálfur segist Mkhitaryan ekki vera viss um að ná leiknum en hann mun í það minnsta gera allt hvað hann getur til þess að spila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×