Fótbolti

Hjörtur: Ég hef aldrei tapað fyrir Frökkum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hjörtur Hermannsson segir að þolinmæðin sé einn af lykilþáttunum í góðu gengi U-21 árs landsliðsins sem er komið í dauðafæri til að tryggja sér sæti á EM 2017 í Póllandi.

Ísland vann N-Írland með einu marki gegn engu í Belfast á föstudaginn. Leikurinn var frekar tíðindalítill en íslensku strákarnir héldu alltaf áfram og uppskáru sigurmark á 87. mínútu.

„Við vitum að fótboltaleikir eru í 90 mínútur. Við lögðum upp með að vera þolinmóðir og vissum að þetta myndi detta fyrir okkar á endanum eins og það hefur gert í undankeppninni,“ sagði Hjörtur í samtali við KSÍ.

„Við fáum alltaf einhver færi og höfum oftar en ekki nýtt þau, eins og í Úkraínu og á N-Írlandi. Það var ekki mikið í gangi í þeim leik en þetta var verðskuldaður sigur myndi ég segja,“ bætti Hjörtur við.

Íslensku strákarnir eru nú staddir í Caen þar sem þeir mæta Frökkum á morgun. Ísland er í góðri stöðu, með 15 stig á toppi riðilsins og á leik til góða á bæði Makedóníu og Frakkland sem eru í 2. og 3. sæti.

„Frakkarnir eru með hörkugott lið eins og alltaf. En við höfum náð í frábær úrslit gegn þeim í gegnum tíðina. Ég hef aldrei tapað fyrir Frökkum og ég held að enginn í hópnum hafi gert það,“ sagði Hjörtur og bætti því að íslenska liðið myndi sætta sig við eitt stig í leiknum á morgun.

Frakkar verða hins vegar að vinna leikinn til að halda lífi í vonum sínum að komast áfram. Hjörtur á von á því að það verði nóg að gera hjá honum og félögum hans í íslensku vörninni á morgun.

„Þeir verða að vinna leikinn, það er bara þannig, sérstaklega eftir tapið gegn Úkraínu. Þeir eru komnir með bakið upp við vegg á meðan við erum í bílstjórasætinu, eigum leik til góða og erum til alls líklegir. Þetta er í okkar höndum,“ sagði Hjörtur sem hefur leikið sex af sjö leikjum Íslands í undankeppninni.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×