Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól á Ítalíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton var fljótastur í dag. Náði sínum þriðja ráspól í röð á Monza.
Lewis Hamilton var fljótastur í dag. Náði sínum þriðja ráspól í röð á Monza. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir ítalska kappakstrinn sem fer fram á morgun. Þetta var fimmti ráspóll Hamilton á Ítalíu. Nico Roserg var annar á Mercedes og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Ferrari tókst að lágmarka skaðan og vera bestir af restinni á heimavelli. Mercedes voru utan seilingar í dag.

Keppnin verður spennandi á morgun. Bein útsending frá henni hefst klukkan 11:30 á morgun á Stöð 2 Sport.

Fysta lota

Tímatakan fór rólega af stað. Renault átti í miklum vandræðum með að finna hraðan á Monza brautinni. Lewis Hamilton var fljótastur í fyrstu lotunni.

Í fyrstu lotunni duttu út Renault- og Sauber ökumennirnir ásamt Daniil Kvyat á Toro Rosso og Esteban Ocon á Manor sem lenti í rafmagnsbilun.

„Við bjuggumst hálfpartinn við þessu. Því miður erum við ekki komin lengra en þetta. Þetta eru mikil vonbrigði en svona er staðan,“ sagði Kevin Magnussen ökumaður Renault eftir lotuna.

Esteban Ocon ýtt í skjól. Hann náði ekki að setja tíma.Vísir/Getty
Önnur lota

Mercedes menn fóru einir út á brautina í upphafi. Með brautina út af fyrir sig settu þeir tíma sem engum tókst að ógna alla lotuna.

Mercedes tókst að fara áfram á mjúkum dekkjum. Aðrir tóku fram ofurmjúku dekkin til að reyna að tryggja sér áframhaldandi þátttöku í tímatökunni.

Í annarri lotu duttu McLaren ökumennirnir út ásamt, Felipe Massa á Williams, Romain Grosjean á Haas, Pascal Wehrlein á Manor og Carlos Sainz á Toro Rosso. Grosjean verður færður aftur um fimm sæti á ráslínu eftir að Haas skipti um gírkassa í bíl hans.

Þriðja lota

Hamilton var fljótstur í fyrstu tilraun topp ökumannanna. Rosberg var annar en gerði smávægileg mistök á hringnum. Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji og Sebastian Vettel fjórði á Ferrari.

Rosberg fór út á undan út en tókst ekki að taka ráspólin af Hamilton. Hamilton kom svo í mark næstum hálfri sekúndu á undan Rosberg.


Tengdar fréttir

Mercedes fljótastir á æfingum á Ítalíu

Mercedes menn voru fljótastir á báðum æfingum dagsins fyrir ítalska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni og Lewis Hamilton þeirri seinni.

Felipe Massa hættir í Formúlu 1

Williams ökumaðurinn Felipe Massa hefur tilkynnt að hann muni hætta í Formúlu 1 þegar núverandi tímabili lýkur.

Villeneuve: FIA virðist vernda Max Verstsappen

Fyrrum heimsmeistarinn Jacques Villeneuve telur dómara í Formúlu 1 veita Max Verstappen meira svigrúm en öðrum. Hann telur að FIA líti út eins og þeir séu að vernda ungstirnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×