Enski boltinn

Terry missir af leiknum gegn Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Terry er meiddur á ökkla.
Terry er meiddur á ökkla. vísir/getty
John Terry, fyrirliði Chelsea, missir af leiknum gegn Liverpool á föstudaginn vegna meiðsla.

Terry meiddist á ökkla þegar Chelsea og Swansea gerðu 2-2 jafntefli á sunnudaginn. Hann sást yfirgefa Liberty völlinn á hækjum og nú er komið í ljós að hann verður frá í 10 daga.

Terry missir því af leiknum gegn Liverpool á föstudaginn og leiknum gegn Leicester City í deildarbikarnum á þriðjudaginn eftir viku. Vonast er til að hann verði orðinn klár fyrir leikinn gegn Arsenal 24. september.

Búist er við því að Brasilíumaðurinn David Luiz taki stöðu Terrys í hjarta Chelsea-varnarinnar.

Chelsea er með 10 stig í 2. sæti ensku úrvalsdeildinni eftir fjórar umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×