Lukaku braut ísinn og sökkti Sunderland Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2016 20:45
Romelu Lukaku skoraði öll þrjú mörk Everton þegar liðið lagði Sunderland að velli, 0-3, á Ljósvangi í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lukaku hafði ekki skorað deildarmark síðan í mars en stíflan brast með látum í kvöld. Staðan var markalaus í hálfleik og þegar klukkutími var liðinn var enn jafnt. Þá tók Lukaku til sinna ráða og skoraði þrennu á tæpum 12 mínútum. Belginn skoraði fyrsta markið á 60. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Idrissa Gueye. Tveimur mínútum síðar þrumaði hann boltanum í slánna á marki Sunderland. Lukaku skoraði sitt annað mark á 68. mínútu með skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf Yannicks Bolasie. Þremur mínútum síðar fullkomnaði hann svo þrennuna þegar hann setti boltann framhjá Jordan Pickford í marki Sunderland. Með sigrinum komst Everton upp í 3. sæti deildarinnar en liðið hefur náð í 10 stig í fyrstu fjórum umferðunum. Sunderland er hins vegar í miklum vandræðum í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með einungis eitt stig. Það stefnir því í langan vetur hjá David Moyes og lærisveinum hans.
Enski boltinn Mest lesið Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Fótbolti Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Fótbolti Stefán Árni stríddi Tomma með paparassa myndbandi frá sumrinu Körfubolti Logi fær ekki seinna markið skráð á sig Fótbolti Valsmenn rufu fjörutíu marka múrinn Handbolti Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Fótbolti Stefán Teitur og Jón Dagur á leið í bann Fótbolti „Við munum læra margt af þessu“ Fótbolti Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Sjá meira