Fótbolti

Birkir og Rúnar báðir á skotskónum í Íslendingaslagnum

Kristinm Páll Teitsson skrifar
Birkir í leik með Basel á sínum tíma
Birkir í leik með Basel á sínum tíma vísir/getty
Birkir Bjarnason og Rúnar Már Sigurjónsson voru báðir á skotskónum í 2-1 sigri Basel á Grasshoppers í svissnesku úrvalsdeildinni í kvöld.

Var þetta sjöundi sigurinn í röð hjá Basel sem er komið með níu stiga forskot á toppi svissnesku deildarinnar en liðið hefur hampað svissneska titlinum undanfarin sjö tímabil.

Félagarnir úr íslenska landsliðinu voru báðir í byrjunarliðum sinna liða í kvöld og tók það Birki aðeins 29. mínútur að skora eftir sendingu frá Taulant Xhaka.

Seydou Doumbia bætti við öðru marki Basel tveimur mínútum síðar en Rúnar náði að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Kim Kallstrom.

Doumbia var aftur á ferðinni á 86. mínútu leiksins er hann gulltryggði sigur heimamanna með fimmta marki sínu í deildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×