Fótbolti

Ótrúleg endurkoma hjá Kjartani Henry og félögum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Kjartan Henry og félagar eru á góðu skriði.
Kjartan Henry og félagar eru á góðu skriði. Twitter-síða Horsens.
Kjartan Henry Finnbogason kom inn af bekknum og var ein af hetjum Horsens er liðið vann upp 0-2 forskot og tók stigin þrjú með 4-2 sigri gegn Viborg á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Viborg komst 2-0 yfir á heimavelli en Kjartan Henry kom inná í stöðunni 2-1 á 53. mínútu og tók það hann aðeins tíu mínútur að jafna metin af vítapunktinum.

Fimm mínútum síðar kom Andre Bjerregaard Horsens yfir og gulltryggði Lasse Kryger sigurinn undir lok venjulegs leiktíma.

Horsens er því komið upp í sjötta sæti deildarinnar með þrettán stig að átta umferðum loknum en eftir að vera án sigurs í fyrstu fimm umferðum hefur liðið unnið fimm leiki í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×