Sagður hafa fengið 12 ára dóm í hefndarskyni Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. september 2016 07:00 Kínverski listamaðurinn Ai Weiwei, sem hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í rúmt ár, er einn þeirra sem notið hafa aðstoðar lögmannsins Xia Lin. Nordicphotos/AFP
Lögmaður kínverska listamannsins Ai Weiwei hefur verið dæmdur í tólf ára fangelsi í Kína. Kínversk mannréttindasamtök segja dóminn hefndaraðgerð, ætlaða til þess að þagga niður í mannréttindalögfræðingum. Lögmaðurinn Xia Lin, sem er 46 ára, hefur tekið að sér ýmis mannréttindamál fyrir kínverskum dómstólum. Meðal annars hefur hann verið verjandi hagfræðingsins Guo Yushan, sem hafði lýst yfir stuðningi við mótmælin í Hong Kong árið 2014. Xia var einmitt handtekinn í nóvember það ár, þegar hann var að búa sig undir að verja Guo. Sjálf réttarhöldin hófust þó ekki fyrr en í júní síðastliðnum, hálfu öðru ári eftir handtökuna. „Hann telur að þeir séu að hefna sín á sér fyrir að hafa blandað sér í Hong Kong-málið og fleiri mannréttindamál,“ er haft eftir Ding Xikui, lögmanni Xias, á fréttavef breska dagblaðsins The Guardian. Xia var sakfelldur fyrir að hafa með svikum útvegað sér jafnvirði 80 milljóna króna til að greiða upp spilaskuld. Stuðningsmenn hans segja ekkert hæft í þessu. Dómurinn hafi þann eina tilgang að fæla lögmenn frá því að taka að sér mannréttindamál. „Þessi dómur er yfirgengilegur,” segir Maya Wang hjá mannréttindasamtökunum Human Rights Watch í viðtali við frönsku fréttastofuna AFP, „ekki bara vegna þess hve þungur hann er heldur einnig vegna þess að hann var felldur yfir mannréttindalögmanni sem hefur reynt að vernda sjálfan sig með því að vinna vinnu sína með faglegum hætti án þess að láta mikið á sér bera.” Lítið sem ekkert hefur verið fjallað um dóminn í kínverskum fjölmiðlum. Hins vegar hafa samfélagsmiðlar verið óspart notaðir til að vekja athygli á málinu. Xia er þekktastur fyrir að hafa tekið að sér mál kínverska listamannsins Ai Weiwei, eins helsta listamanns Kína, sem hafði verið óhræddur við að vekja athygli á mannréttindabrestum. Weiwei var handtekinn árið 2011, sakaður um skattsvik, en látinn laus nokkrum mánuðum síðar. Hann hélt til Evrópu árið 2015 og hefur verið í sjálfskipaðri útlegð frá Kína síðan.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Hálft landið án rafmagns Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Fleiri fréttir Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Sjá meira