Tveir lögreglumenn skotnir til bana Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 9. október 2016 09:41 Mikill viðbúnaður var í Palm Springs í gær. vísir/epa
Tveir lögreglumenn voru skotnir til bana og einn særðist í skothríð í heimahúsi í Palm Springs í Kaliforníu í gærkvöld. Lögreglan var kölluð út eftir að tilkynnt hafði verið um heimilisofbeldi í húsinu en maðurinn neitaði hins vegar að hlýða fyrirmælum lögreglu og hóf þess í stað skothríð. Byssumanninum tókst að flýja en var handtekinn skömmu síðar eftir umfangsmikla leit. Mikill viðbúnaður var í hverfinu eftir skotárásina. Hverfið var girt af og íbúar beðnir um að halda sig innandyra. Nágrannar segja manninn aldrei hafa verið til vandræða, en að sögn lögreglu hefur hann einu sinni verið handtekinn og í kjölfarið þurft að bera ökklaband. Palm Springs er afar friðsæll staður og eru íbúar slegnir eftir atburði kvöldsins. Lögð hafa verið blóm, kort og kerti fyrir utan höfuðstöðvar lögreglunnar og þá mættu mörg hundruð manns í athöfn til minningar um lögreglumennina tvo. Annar lögreglumaðurinn hét Lesley Zerebny og var 27 ára. Zerebny var nýkominn úr fæðingarorlofi eftir að hafa eignast dóttur fyrir fjórum mánuðum, en hún hafði starfað hjá lögreglunni í um eitt og hálft ár. Hinn lögreglumaðurinn, Jose Gilbert Vega, var átta barna faðir og hafði starfað hjá lögreglunni í 35 ár.
Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira