Rekja vannæringu 11 mánaða drengs til öfgafulls mataræðis móðurinnar Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. október 2016 22:43 Heimil fjölskyldunnar í Pennsylvaníu. Skjáskot
Móðir í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir að vanrækja son sinn en rannsókn lögreglu leiddi í ljós að hún hafi einungis nært hann með hnetum og ávöxtum. Fram kemur í frétt CBS Pittsburgh af málinu að móðirin, Elizabeth Hawk, hafi fylgt ströngu mataræði og að hún hafi farið fram á að fjölskyldumeðlimir hennar gerðu það einnig. „Hún ætlaði sér að lifa eingöngu á vatni og sólarljósi,“ sagði mágkona hennar í samtali við fjölmiðla vestanhafs. Mágkonan segir að hún hafi komist á snoðir um að eitthvað gruggugt væri á seyði þegar hún sá útbrot á líkama drengsins. Þá grunaði hana einnig að hreyfiþroski hans væri minni en eðlilegt mætti teljast. Móðir hans hafi þó blásið á slíkar vangaveltur og sagt að ofnæmi væri um að kenna. Það hafi ekki verið fyrr en eiginmaður hennar og faðir drengsins, Jerry Hawk, leitaði til barnaverndayfirvalda sem grunur mágkonunnar var staðfestur. Sérfræðingar komust að því að hinn 11 mánaða gamli drengur væri vannærður og að mataræðið kæmi alvarlega niður á þroska hans. Umfjöllun CBS Pittsburgh um málið má sjá hér að neðan.
Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira