Erlent

Þýska lögreglan leitar að meintum árásarmanni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Lögreglan í Þýskalandi leitar nú karlmanns sem grunaður er um að hafa verið að undirbúa sprengjuárás í landinu. Lögreglumenn sprengdu sér leið inn í íbúð mannsins í Chemnitz í austurhluta landsins í gær eftir að hafa fengið ábendingu um yfirvofandi árás.

Um er að ræða 22 ára sýrlenskan karlmann, en lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar um manninn að svo stöddu.

Ekkert fannst í íbúð mannsins sem bendir til þess að hann sé að skipuleggja árás. Lögregla telur þó að maðurinn sé hættulegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×