Ætla að styrkja frið með Nóbel Guðsteinn Bjarnason skrifar 8. október 2016 07:00 Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, tekur í höndina á Timoleon Jiminez, leiðtoga FARC-hreyfingarinnar, við undirritun friðarsamkomulagsins 26. september. vísir/afp
Norska Nóbelsnefndin segist vonast til þess að úthlutun friðarverðlauna þetta árið verði til þess að friður verði að veruleika í Kólumbíu. Verðlaunin fær Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, sem fyrir stuttu undirritaði friðarsamkomulag við leiðtoga skæruliðahreyfingarinnar FARC, að loknum fjögurra ára erfiðum friðarviðræðum. Samkomulagið var fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu um síðustu helgi, en Santos hefur sagt að hann ætli að halda áfram að vinna að friði til síðasta dags í embættinu. „Nefndin vonar að friðarverðlaunin muni gefa honum styrk til að ná árangri í þessu erfiða starfi,“ segir í tilkynningu norsku Nóbelsnefndarinnar. „Enn fremur er það von nefndarinnar að á komandi árum muni íbúar Kólumbíu uppskera ávextina af því friðar- og sáttaferli sem nú stendur yfir.” Nefndin segir þó ekkert öruggt um að friðarsamkomulaginu verði bjargað, úr því sem komið er: „Það er raunveruleg hætta á því að friðarferlið stöðvist og borgarastríð blossi upp á ný,“ sagði formaður nefndarinnar, þegar skýrt var frá vali ársins. Sjálfur segist Santos vera óendanlega þakklátur fyrir þennan heiður. Hann tileinkaði verðlaunin fórnarlömbum ófriðarins. Styrjöld stjórnarhersins og FARC stóð yfir í meira en hálfa öld og kostaði meira en 200 þúsund manns lífið.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir hönnun á minnstu vélum heims Jean-Pierre Sauvage, Sir J. Fraser Stoddart og Bernard L. Feringa hljóta Nóbelsverðlaun í efnafræði þetta árið. 5. október 2016 10:07 Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira
Fá Nóbelsverðlaun fyrir hönnun á minnstu vélum heims Jean-Pierre Sauvage, Sir J. Fraser Stoddart og Bernard L. Feringa hljóta Nóbelsverðlaun í efnafræði þetta árið. 5. október 2016 10:07