Sýrlandsstríðið Berglind Gunnarsdóttir skrifar 7. október 2016 16:29 Það er hörmulegt að horfa upp á stríðsátökin í Sýrlandi - og engin lausn í sjónmáli. Þetta stríð, sem dregst æ meir á langinn, minnir með vissum hætti á annan hildarleik 20. aldarinnar, borgarastyrjöldina á Spáni, - þótt ýmislegt sé öðruvísi. En í ár eru liðin 80 ár síðan hún hófst, 1936, og stóð til 1939. Þá reis her uppreisnarmanna undir stjórn hershöfðingjans Francos gegn lýðræðislega kjörinni stjórn landsins. Franco og herinn voru í forsvari fyrir forréttindastéttir konungsvaldsins sem undu ekki lýðveldinu. Hitler og Mussolini studdu Franco og sendu m.a. þýskar sprengjuflugvélar á vettvang átakanna. Sagt er að Spánn hafi verið æfingarvöllur fyrir nýjar og öflugar vígvélar Hitlers áður en aðalhildarleikurinn hófst sem var heimsstyrjöldin síðari. Bretar og Frakkar héldu að sér höndum og enginn veitti hinu unga lýðveldi stuðning nema Rússar sem sendu matvæli og vopn og herlið undir lokin. Ýmsir urðu til að ásaka Breta og Frakka fyrir að skerast ekki í leikinn; borgarastríðið á Spáni var blóðbað og landið leiksoppur þeirra pólitísku andstæðinga sem áttust við á þeim tíma. Til að bæta fyrir þá vanrækslu lögðu margir ungir menn í Evrópu og Bandaríkjunum leið sína suður á Íberíuskagann til þess að berjast fyrir málstað lýðveldisins. Meira að segja 2 eða 3 Íslendingar fóru þangað þeirra erinda. Mannfallið var gífurlegt og grimmdarverkin mörg, ekki síst í „hreinsunum“ Francos að stríðinu loknu. Og þar til Franco lést árið 1975 var Spánn einræðisríki. Það er við hæfi að minnast þessa þegar átökin í Sýrlandi eru nefnd. Það er nefnilega svo að Sýrland sýnist á ekki ósvipaðan hátt vera leiksoppur andstæðra afla á pólitískum vettvangi heimsins nú um stundir. Staðan er að ýmsu leyti flókin og sjónarmiðin ólík. Átök í Miðausturlöndum hafa lengi staðið yfir og saga evrópskra nýlenduherra í þessum heimshluta hefur magnað erfiðleikana, sömuleiðis átökin milli ólíkra trúarhópa íslams. Afstaða Vesturlandabúa vekur þá spurn hvort þeir hafi aldrei hætt að skoða Austurlönd sem eitthvað óskiljanlegt og fjarlægt – sem bætir ekki úr skák. Í Fréttablaðinu þann 11. júlí sl. fjallar Stefán Pálsson sagnfræðingur um nýútkomna skýrslu og áfellisdóm hennar yfir herleiðangur Tonys Blair og Bush í Írak. Hann nefnir að svo virðist sem njósnastofnanir og ráðuneyti á Vesturlöndum hafi verið „ófær um að meta rétt stöðu mála í Írak, sjá fyrir framvindu mála eða túlka fyrirliggjandi gögn“. Einnig segir hann að „meintir sérfræðingar í innviðum fjarlægra ríkja hafi hvorki þangað komið né talað tungumál heimamanna“. Svipað sjónarmið kemur fram í viðtali danska dagblaðsins Information, þann 25. júní sl., við sýrlenska rithöfundinn Yassin al-Haj Saleh. Hann hefur skrifað mikið um málefni Sýrlands og er kallaður „samviska Sýrlands“. Hann hefur lengi gagnrýnt einræðisstjórn al-Assads, forseta landsins, en hefur einnig ýmislegt að segja um viðhorf margra á Vesturlöndum til þess sem er að gerast í heimalandi hans. Yassin sat í fangelsi í 16 ár fyrir skrif sín, en flýði land 2013 og býr nú í Istanbúl. Hann er fyrir löngu orðinn þekktur á alþjóðavettvangi og segir það á vissan hátt hafa verndað sig fyrir öryggissveitum forsetans sem fylgdust með skrifum hans. Í viðtalinu rifjar hann upp þegar fyrsta fjölmenna mótmælagangan gegn stjórn landsins var farin í borginni Deraa í suðurhluta landsins árið 2011. Tveim vikum síðar hélt forsetinn ræðu í þinginu þar sem hann fordæmdi mótmælin og sagði þau sprottin af samsæri utanlands (þ.e. í Ísrael og USA). Þá boðaði forsetinn að allar tilraunir til „hryðjuverka“ yrðu barðar niður. Í kjölfarið lýsti Yassin skoðun sinni á ræðu forsetans á arabískum samfélagsmiðlum og fór því næst í felur. Þrátt fyrir útlegðina heldur Yassin áfram að skrifa um baráttuna í heimalandinu og beitir penna sínum á fernum vígstöðvum: gegn einræðisstjórn forsetans og gegn hinum herskáu íslamistum sem hann telur að hafi rænt eiginkonu hans og samherja, Samiru Khalil, en ekkert hefur til hennar spurst síðan 2013. Í þriðja lagi segist hann mæta kaldhæðni Vesturlandabúa sem sýni samúð á yfirborðinu. Og loks gagnrýnir hann afstöðu menntamanna á Vesturlöndum sem hafa að hans mati brugðist byltingunni í Sýrlandi. Í því sambandi nefnir hann slóvenska heimsspekinginn Slavoj Žižek sem grafi undan uppreisninni gegn al-Assad með skrifum sínum og geri lítið úr þeim sem standa að henni. En Žižek hefur haldið því fram m.a. að það skorti skýr og róttæk samtök sem ekki „drukkni í óljósum sæg af íslamistum“. Yassin svarar því til að sýrlenskir andófsmenn hafi í margar kynslóðir þurft að greiða baráttuna fyrir mannlegri virðingu og frelsi með lífi sínu, og að það sé bæði áfall og vonbrigði að þeir sem móti skoðanir manna í hinu þróaða vestri skuli „halda með ruddalegustu, spilltustu og glæpsamlegustu ríkisstjórn á jarðríki“. Hann undrast að fólk sem er vel menntað, hefur vegabréf og getur ferðast hvert sem það vill skuli tala eins og það viti best hvað sé að gerast í Sýrlandi, „jafnvel þótt það hafi ekki dvalið í landinu, tali ekki arabísku né hafi tengsl við venjulegt fólk þar“. Yassin segir að íslamistarnir hafi ekki birst á sjónarsviðinu fyrr en 10 mánuðum eftir að byltingin hófst. Eftir þeim var tekið en ekki hinum sem tóku þátt og voru ekki jafn áberandi. Þannig varð baráttan gegn hryðjuverkunum aðalatriðið, en byltingin sjálf lenti á hliðarlínunni. Vesturlönd líta á níhilistana í Ísis sem hina miklu ógn, með því móti verður Íslamska ríkið mikilvægt, ekki sýrlenska þjóðin. Þau líta framhjá því að Sýrland er samfélag með innri mótsetningum þar sem almennir borgarar berjast fyrir mannréttindum og réttlæti, segir m.a. í þessu upplýsandi viðtali. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Af hverju þarf ég alltaf að vera í kaffi hjá Bjarna og Simma? Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Menntaumræða á villigötum Gunnlaugur Magnússon Skoðun Eru móttökuskólar málið? Thelma Rut Haukdal Magnúsdóttir Skoðun Ef það er enginn bóndi – þá er enginn matur Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Opið bréf til foreldra í Drafnarsteini Halldóra Guðmundsdóttir Skoðun Hélst þú upp á krabbameinið? Áslaug Eiríksdóttir Skoðun Hærri laun eða viðhalda áunnum réttindum! Hvernig verðleggjum við menntun barnanna okkar? Böðvar Ingi Guðbjartsson Skoðun Hvað með afköst ríkisins? Ágúst Kristján Steinarsson Skoðun Menningarblöndun: Styrkur samfélagsins Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Með samvinnu, stuðning og skilningi er hægt að finna nýjar leiðir til að vera félagslega virkur – jafnvel í erfiðum aðstæðum Kolbrún Halla Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Menntaumræða á villigötum Gunnlaugur Magnússon skrifar Skoðun Af hverju þarf ég alltaf að vera í kaffi hjá Bjarna og Simma? Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Eru móttökuskólar málið? Thelma Rut Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvað með afköst ríkisins? Ágúst Kristján Steinarsson skrifar Skoðun Hærri laun eða viðhalda áunnum réttindum! Hvernig verðleggjum við menntun barnanna okkar? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Með samvinnu, stuðning og skilningi er hægt að finna nýjar leiðir til að vera félagslega virkur – jafnvel í erfiðum aðstæðum Kolbrún Halla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ef það er enginn bóndi – þá er enginn matur Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Menningarblöndun: Styrkur samfélagsins Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Horfin þjóð Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Opið bréf til borgarstjórnar vegna málefna í Grafarvogi Kristjana Knudsen skrifar Skoðun Opið bréf til foreldra í Drafnarsteini Halldóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðing um lög versus viðhorf Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Frægðarvæðing og innihald í stjórnmálum Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Frelsi - ekkert miðjumoð! Kári Allansson,Ívar Orri Ómarsson skrifar Skoðun Litlir sigrar, stór áhrif – Hvernig iðjuþjálfar Ljóssins hjálpa krabbameinsgreindum að auka og viðhalda virkni, gleði og styrk Guðný Katrín Einarsdóttir skrifar Skoðun Er ekki best að fara í framboð? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Er best að gera ekki neitt þegar börn búa ekki við jöfn tækifæri? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Einokun að eilífu, amen Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Fjölmennar kvennastéttir Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Fjölmörg hlutverk skólafólks! Gróa Arndal Axelsdóttir skrifar Skoðun Hvernig samfélag? Egill Rúnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers vegna segir Lilja ekki satt? Björn B Björnsson skrifar Skoðun 49 ár Bryndís Guðmundsdóttir,Helga Björg O. Ragnarsdóttir,María Björk Lárusdóttir,Rósa Björk Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Tilraunaverkefnið Ísland Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Frumvarp til fjárlaga 2025 - Áherslur ÖBÍ réttindasamtaka Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Venjulegt fólk á þing – umbætur strax Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Við ætlum áfram, ekki afturábak Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmálaflokkar og stefnur – Vöndum valið Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Að geta fundið til með börnum: Heildstæð nálgun í skólakerfinu Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Sigrumst á mænusótt (lömunarveiki) sem enn er á sveimi! Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Hærri laun eða viðhalda áunnum réttindum! Hvernig verðleggjum við menntun barnanna okkar? Böðvar Ingi Guðbjartsson Skoðun
Með samvinnu, stuðning og skilningi er hægt að finna nýjar leiðir til að vera félagslega virkur – jafnvel í erfiðum aðstæðum Kolbrún Halla Guðjónsdóttir Skoðun
Skoðun Hærri laun eða viðhalda áunnum réttindum! Hvernig verðleggjum við menntun barnanna okkar? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar
Skoðun Með samvinnu, stuðning og skilningi er hægt að finna nýjar leiðir til að vera félagslega virkur – jafnvel í erfiðum aðstæðum Kolbrún Halla Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Litlir sigrar, stór áhrif – Hvernig iðjuþjálfar Ljóssins hjálpa krabbameinsgreindum að auka og viðhalda virkni, gleði og styrk Guðný Katrín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er best að gera ekki neitt þegar börn búa ekki við jöfn tækifæri? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar
Skoðun 49 ár Bryndís Guðmundsdóttir,Helga Björg O. Ragnarsdóttir,María Björk Lárusdóttir,Rósa Björk Bergþórsdóttir skrifar
Skoðun Að geta fundið til með börnum: Heildstæð nálgun í skólakerfinu Inga Sigrún Atladóttir skrifar
Hærri laun eða viðhalda áunnum réttindum! Hvernig verðleggjum við menntun barnanna okkar? Böðvar Ingi Guðbjartsson Skoðun
Með samvinnu, stuðning og skilningi er hægt að finna nýjar leiðir til að vera félagslega virkur – jafnvel í erfiðum aðstæðum Kolbrún Halla Guðjónsdóttir Skoðun