Fótbolti

Eiður Smári: Lars sagði að England væri ofmetnasta landsliðið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður Smári á EM.
Eiður Smári á EM. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen hefur upplýst um hluta af því sem Lars Lagerbäck sagði við íslenska landsliðið í aðdraganda sigursins glæsilega gegn Englandi á EM.

„Lars benti á að England væri ofmetnasta landslið síðustu ára. Er maður lítur til baka sér maður að það er satt hjá honum,“ sagði Eiður Smári við BBC.

„Það er alltaf svo mikil pressa á enska landsliðinu á stórmótum þó svo liðið hafi ekki gert neitt á stórmótum í háa herrans tíð.“

Eins og allir muna þá vann Ísland leikinn 2-1 og Roy Hodgson hætti sem landsliðsþjálfari Englands í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×