Evrópuþingmaður UKIP slasaðist eftir slagsmál við flokksfélaga sinn Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 6. október 2016 14:22 Steven Woolfe. Vísir/EPA
Steven Woolfe, evrópuþingmaður UKIP-flokksins í Bretlandi, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa verið kýldur á fundi evrópuþingmanna flokksins í Strassburg fyrr í dag. Mike Hookem, annar evrópuþingmaður flokksins á að hafa slegið Woolfe, sem hneig niður nokkru síðar og var þá fluttur á sjúkrahús. Samkvæmt nýjustu fréttum er liðan Woolfe stöðug. Woolfe er ákveðin vonarstjarna innan UKIP, en talið er að hann muni sækjast eftir formennsku í flokknum eftir að Diane Jones sagði af sér. Samkvæmt heimildum the Guardian átti atvikið sér stað eftir spennuþrunginn fund Evrópuþingmanna UKIP-flokksins þar sem Hookem ásakaði Woolfe um að íhuga að flytja sig yfir í íhaldsflokkinn. Hookem á að hafa sagt nokkur vel valin orð við Woolfe vegna þessa. Woolfe á þá að hafa farið úr jakkanum, gengið að Hookem og sagt „Jæja. Þú úti núna, eða eitthvað í þá áttina,“ segir heimild Guardian. „Þeir fóru út og Steven Woolfe kom illa út úr því.“ Woolfe virtist í góðu lagi í um hálfa klukkustund en þá hneig hann niður og var fluttur á sjúkrahús. Á tímabili var talið að Woolfe væri í lífshættu, en samkvæmt nýjustu fregnum er líðan hans stöðug og hann með meðvitund. Samkvæmt Darren McCaffrey, fréttamanni Sky, hefur Woolfe nú gefið út yfirlýsingu þar sem hann segir líðan sína betri. „Sneiðmyndataka sýndi að enginn blóðtappi er í heilanum. Á þessari stundu líður mér betur en nokkru sinni fyrr. Ég dvel á sjúkrahúsinu yfir nótt á meðan beðið er eftir niðurstöðum rannsókna, svo gengið sér úr skugga um að allt sé með feldu,“ segir í tilkynningu Woolfe. „Ég vil að allir viti að starfs fólk þingsins, evrópuþingmenn UKIP og starfsfólk sjúkrahússins hafa verið stórkostleg. Umönnun þeirra hefur verið einstök. Ég sit uppréttur og er sagt að ég líti vel út. Einu afleiðingarnar þessa stundina eru dofi í vinstri hendi og vinstri hlið andlits míns.“ Neðst í tilkynningu frá Woolfe stendur að hann hafi líklega fengið tvö flogaköst og fann fyrirdofa á vinstri hlið líkamans. Hann hafi misst meðvitund en að það sé liðið hjá.NEW: FULL STATEMENT from @Steven_Woolfe - "I am feeling fine": pic.twitter.com/BTixjtyOio— Darren McCaffrey (@DMcCaffreySKY) October 6, 2016
Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Erlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Erlent Líkamsárás og eignaspjöll Innlent Fleiri fréttir Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Sjá meira