Yfirgaf ekki heimili foreldra sinna í þrjátíu ár Atli Ísleifsson skrifar 5. október 2016 10:46 Ýmislegt er á huldu varðandi mál mannsins. Vísir/Getty
Lögregla í Þýskalandi rannsakar nú mál manns í bæverska bænum Bayreuth sem er sagður ekki hafa yfirgefið heimili foreldra sinna í þrjátíu ár.BBC segir frá því að ekki hafi sést til mannsins, sem nú er 43 ára, frá því að hann hætti að sækja skóla, þrettán ára gamall. Lögregla segir að hann líti út fyrir að hafa verið vanræktur, en þó ekki vannærður. Lögð er áhersla á að ekki er víst að foreldrar mannsins verði ákærð, þar sem mögulega sé um fjölskylduharmleik að ræða frekar en að þeir hafi gerst brotlegir við lög. Móðir mannsins hefur greint þýskum fjölmiðlum frá því að sonur hennar hafi ekki viljað fara að heiman og hún hafi einungis viljað vernda son sinn. Lögreglu barst ábending um málið í síðasta mánuði og fór þá með manninn í læknisskoðun. Hann hefur ekki verið nafngreindur. Talsmaður lögreglu, Jürgen Stadter, segir að lögregla viti ekki nákvæmlega hvað maðurinn hafi dvalið lengi hjá foreldrum sínum án samskipta við aðra. Þá sé ekki vitað hvort hann hafi haft færi á að yfirgefa heimilið. „Kannski vildi maðurinn hafa þetta svona,“ segir Stadter. Einu skráðu opinberu gögnin um manninn sem lögregla hefur haft uppi á eru um þrjátíu ára gömul, þar sem fram kemur að hann hafi sótt grunnskóla. Í þrjátíu ára gömlum gögnum frá skólayfirvöldum segir að hann hafi ekki verið í standi til að sækja þar skóla.
Mest lesið Netanyahu heitir hefndum Erlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira