Innlent

Fimm mánaða fangelsi fyrir að slá mann í andlitið með bjórglasi

Atli Ísleifsson skrifar
Fórnarlambið hlaut skurði á nefi og efri vör.
Fórnarlambið hlaut skurði á nefi og efri vör. Vísir/Hari
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fimm mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á veitingastaðnum Classic Rock í Ármúna í Reykjavík í apríl 2014.

Sló maðurinn annan mann í andlitið með glerglasi sem brotnaði með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut skurði á nefi og efri vör.

Fullnusta refsingar mannsins skal frestað og hún falla niður að liðnum tveimur árum, haldi maðurinn almennt skilorð.

Við aðalmeðferð kvaðst maðurinn kannast við að hafa slegið brotaþola með glasi sem hann hafði í hendinni en það hafi ekki verið af ásetningi heldur um ósjálfráð viðbrögð að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×