Innlent

Hvetja þá sem urðu vitni að misþyrmingu á lambi í Öxnadal til að gefa sig fram

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lambið á myndinni tengist fréttinni ekki.
Lambið á myndinni tengist fréttinni ekki. Vísir/Stefán
Matvælastofnun óskar eftir vitnum að misþyrmingu á lambi við smölun sauðfjár í Öxnadal í Eyjafirði helgina 17-18. september. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og leitar vitna að atvikinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Talið er að fjöldi manns hafi verið viðstaddir þegar atvikið átti sér stað. Svo virðist sem fólk vilji ekki upplýsa um það sem fram fór en Matvælastofnun bendir á að vitni, eða þau sem tilkynna lýsingu á atvikinu til Matvælastofnunar, geti óskað eftir nafnleynd gagnvart öðrum en stofnuninni og lögreglu.

Í frétt Mbl í dag var haft eftir fólki í Hörgársveit að einn smalamanna hefði tekið örmagna lamb, gengið í skrokk á því og stappað á hálsi þess. Mörgum hafi brugðið en ekki vitað til þess að neinn hefði tilkynnt málið til yfirvalda.

Síðar sama dag fannst lamað lamb í Þverrárrétt og óskaði héraðsdýra­lækn­ir eft­ir því að slá lambið af og kryfja það síðan. Eig­andi lambs­ins neitaði því og urðaði lambið sjálf­ur. Af þeim sökum hefði ekki verið hægt að sanna að um sama lamb hefði verið að ræða.

„Ef líklegt má telja að hagsmunir viðkomandi skaðist ef greint er frá nafni hans skal fallast á ósk um nafnleynd. Ef ekki eru forsendur til þess að fallast á nafnleynd er tilkynnanda heimilt að draga tilkynningu sína til baka,“ segir í tilkynningunni.

Vitni eru beðin um að senda Matvælastofnun lýsingu á atvikinu í gegnum tilkynningakerfi Matvælastofnunar á forsíðu mast.is undir Senda ábendingu, með tölvupósti á netfangið mast@mast.is eða að hafa samband við stofnunina í síma 530-4800.

Í lögum nr. 55/2013 um velferð dýra segir: 

„Leiki grunur á að meðferð á dýrum brjóti gegn lögum þessum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim skal sá sem verður þess var tilkynna það Matvælastofnun eða lögreglu svo fljótt sem auðið er. Sé mál tilkynnt lögreglu skal hún tilkynna Matvælastofnun um það. Matvælastofnun skal kanna hvort tilkynning sé á rökum reist.“ 

Framburður vitna getur skipt sköpum um það hvort hægt sé að draga þá til saka sem fara illa með dýr. Stöndum saman vörð um velferð dýra segir í tilkynningunni frá Matvælastofnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×