Innlent

Lét hnefahöggin dynja á nágranna sínum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Atvikið átti sér stað í fjölbýlishúsi í Borgarnesi. Maðurinn býr á hæðinni fyrir neðan hjónin.
Atvikið átti sér stað í fjölbýlishúsi í Borgarnesi. Maðurinn býr á hæðinni fyrir neðan hjónin. vísir/pjetur
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vesturlands um að hafna kröfu lögreglustjórans á Vesturlandi um nálgunarbann yfir manni sem grunaður er um líkamsárás gegn nágrannahjónum hans. Var þess krafist að maðurinn fengi ekki að nálgast eða hafa samband við hjónin og börn þeirra í sex mánuði.

Börnin skelfingu lostin

Maðurinn er grunaður um að hafa brotist inn til hjónanna hinn 15. september síðastliðinn með því að hafa kýlt í gegnum rúðu á útidyrahurð íbúðar þeirra. Hann hafi skorið sig illa á höndunum og verið „alblóðugur þegar hann kom þangað inn og blóð úr honum spýst um íbúðina,“ að því er segir í dómnum.

Konan var ein í íbúðinni með börnum sínum tveimur, tíu og átta ára, þegar maðurinn ruddist inn. Hún kallaði á eiginmann sinn, sem var fyrir utan, sem kom inn skömmu síðar. Eiginmaður konunnar sagði í skýrslutöku lögreglu að kærði hafi tryllst og látið hnefahöggin dynja á sér, sem hafi leitt til áverka á höfði, hálsi og hnakka og að hann hafi hótað að drepa sig.  Konan sagði börnin hafa orðið skelfingu lostin og falið sig bak við sófa þegar átökin áttu sér stað.

Segist hafa verið stunginn í puttana og dottið aftur fyrir sig

Maðurinn sem grunaður er um verknaðinn neitar sök í málinu. Segist hann hafa farið til nágranna sinna til að ná sátta út af ákveðnu máli, en að hann hafi verið undir áhrifum áfengis. Hann segist hafa verið með höndina við hurðarkarminn og fundið fyrir því að einhver væri að stinga hann í fingurna. Í kjölfarið hafi dyrunum verið lokað á hann þannig að hann fékk hurðina í höfuðið. Við það hafi hann farið með handlegginn inn um glerið, dottið aftur fyrir sig og rotast. Þá hafi hann vaknað við að blóð úr honum gusaðist út.  

Lögreglustjóri Vesturlands taldi rökstuddan grun um að maðurinn hafi brotið gegn fjölskyldunni og fór því fram á að hann fengi ekki að hafa samband við fólkið með neinum hætti, veita þeim eftirför eða koma nálægt þeim á almannafæri í sex mánuði, eða til 16. mars 2017.

Dómurinn féllst hins vegar ekki á kröfu lögreglustjórans. Ekki sé hægt að líta fram hjá því að maðurinn búi ekki á sama heimili og fjölskyldan, heldur á næstu hæð fyrir neðan í fjölbýlishúsinu. Það myndi leiða að því að maðurinn þyrfti að flytja af heimili sínu á gildistíma bannsins. Þá liggi ekkert fyrir um fyrri afbrot, hótanir eða ögranir af hálfu mannsins gagnvart fjölskyldunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×