Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu

Ritstjórn skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson sigraði í formannskjöri Framsóknarflokksins en hann hlaut 52% greiddra atkvæða. Lilja Dögg Alfreðsdóttir var kjörin varaformaður flokksins.

Edda Heiðrún Bachman, leikkona og myndlistarmaður lést á Landspítalanum í dag, 58 ára að aldri. Edda Heiðrún var ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar en hún hafði glímt við taugahrörnunarsjúkdóminn MND um árabil.

Þá fjöllum við einnig um möguleika á opnun neyðarbrautar á Keflavíkurflugvelli en ódýrasta útgáfa brautarinnar mun kosta um 280 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×