Íslendingaliðið á Rivíerunni henti frá sér leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2016 17:35 Karen Knútsdóttir. vísir/pjetur
Íslendingaliðið OGC Nice náði ekki að vinna sinn annan leik í röð í frönsku kvennadeildinni í handbolta í kvöld en með liðinu spila landsliðskonurnar Karen Knútsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir. OGC Nice varð að sætta sig við átta marka tap á móti Cercle Dijon, 32-24, á heimavelli sínum þrátt fyrir að vera í frábærum málum í fyrri hálfleiknum. Karen Knútsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir komust báðar á blað í þessum leik. Karen skoraði tvö mörk úr þremur skotum en Arna Sif nýtti sitt eina skot. Karen spilaði í 24 mínútur en Arna Sif fékk aðeins níu mínútur í kvöld. Karen Knútsdóttir og Arna Sif Pálsdóttir komu Nice í 15-9 með tveimur mörkum í röð þegar sex mínútur voru til hálfleiks en þá fór allt að ganga á afturfótunum. Liðsmenn Cercle Dijon skoruðu fimm síðustu mörk fyrri hálfleiksins og minnkuðu muninn í eitt mark, 15-14. Hálfleiksræðan heppnaðist ekki vel hjá þjálfara Karenar og Örnu því Cercle Dijon tók upp þráðinn frá því fyrir hlé. Cercle Dijon var þannig komið fimm mörkum yfir, 24-19, eftir sextán mínútna leik í seinni hálfleiknum og var þar með búið að vinna 22 mínútna kafla með 11 marka mun, 15-4. Karen minnkaði muninn í 29-24 með seinna marki sínu sem kom fimm mínútum fyrir leikslok. Það var hinsvegar síðasta mark liðsins og leikurinn tapaðist á endanum með átta marka mun, 32-24.
Handbolti Mest lesið Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Enski boltinn Allt jafnt á Ásvöllum Handbolti Aron Dagur í Kópavoginn Handbolti Hamar/Þór hafði betur í nýliðaslagnum Körfubolti Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Handbolti Sædís Rún mátti þola tap gegn Arsenal og Barcelona skoraði átta Fótbolti Myndasyrpa: Dómarinn í Crocs skóm þegar gamla grasið var kvatt Íslenski boltinn Selfoss upp fyrir Stjörnuna Handbolti „Gerðum okkur stundum lífið erfiðara en það þurfti að vera“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 73-79 | Meistararnir unnu í spennutrylli á Hlíðarenda Körfubolti Fleiri fréttir Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Óskar Bjarni: Bara fúll að hafa ekki unnið Guðmundur Bragi og Stiven á sigurbraut Uppgjörið: FH - Gummersbach 21-40 | Lærisveinar Guðjóns Vals sýndu enga miskunn Elvar og Arnar í toppmálum í riðli Vals Uppgjörið: Valur - Porto 27-27 | Ótrúlegir Valsmenn náðu að landa stigi „Ég held að þetta sé það besta sem gat komið fyrir“ „Verið að selja Gummersbach-treyjur á svarta markaðnum í Eyjum“ Guðjón Valur fór með liðið sitt í sund og gaf þeim bragðaref Óvænt nýr vinstri hornamaður í íslenska landsliðinu Tveir Valsmenn valdir í færeyska landsliðið Kolstad í undanúrslit Þjálfari Janusar Daða tekur við sænska landsliðinu Svona var blaðamannafundurinn vegna Evróputvennunnar í Krikanum Allt varð vitlaust í handboltaleik: Einn bitinn og hrækt á þjálfara Berlínarrefirnir völtuðu yfir Rhein-Neckar Löwen Aronslausir FH-ingar unnu nýliðana Jafnt í spennandi Íslendingaslag Ágúst Jóhannsson: Ég var smeykur Uppgjörið: Valur - Haukar 28-22 | Ekkert hik á Valskonum Sjá meira