Björn Steinbekk rýfur þögnina eftir þrjá mánuði: „Ætlaði ekki að vera gaurinn sem klúðraði þessu“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. október 2016 12:01 Björn segir að skilyrði fyrir því að allar endurgreiðslukröfur verði greiddar sé að honum takist að sækja bætur til þeirra sem sviku hann. visir/samsett
Björn Steinbekk segir að hann hafi endurgreitt 10 milljónir vegna miðasölu sem hann stóð fyrir á landsleik Íslands og Frakklands á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar. Hann segist hafa verið svikinn um miðana á leikinn en hafi enn ekki komist að því hver hafi staðið að verki. Björn segir að skilyrði fyrir því að allar endurgreiðslukröfur verði greiddar sé að honum takist að sækja bætur til þeirra sem sviku hann.Þetta kom fram í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun þar sem Björn Steinbekk var gestur þáttarins.Björn hefur lítið viljað tjá sig við fjölmiðla vegna málsins frá því í sumar en fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná sambandi við hann vegna málsins frá því að það kom upp. Tugir Íslendinga sem keyptu miða á leikinn sátu uppi með sárt ennið í grenjandi rigningu í París fyrir utan Stade de France þar sem Birni hafði ekki tekist að útvega alla þá miða sem hann hafði lofað.Mikið gekk á þegar reynt var að afhenda miðana fyrir utan völlinn fyrir leik Íslands og FrakklandsSegist hafa gert margþætt mistök „Ég seldi 458 á leikinn. Ég afhendi 389 miða fyrir utan völlinn. Eftir sitja rúmlega 70 miðar sem ég var ekki með. Hluti af því má skýra með að bróðir minn var rændur,“ segir Björn sem segist hafa gert margþætt mistök í málinu. Vandræðin hafi hafist þegar hann áttaði sig á því á laugardeginum fyrir leik að hann myndi ekki fá þá miða sem honum hafi verið lofað af þeim sem hann keypti miðanna af í upphafi. „Þá hefði ég átt að láta fólk vita. Ég hefði átt að senda út tölvupóst og segja að það væru einhver vandræði í gangi og mér þykir þetta leiðinlegt og ætla að endurgreiða miðana. Ég tek hins vegar þá ákvörðun að útvega miða frá öðrum aðila, eftir á hyggja ekki góð ákvörðun,“ segir Björn. „Kannski spilaði egóið inn í, sem sagði mér að ég myndi redda þessu því ég ætlaði ekki að vera gaurinn sem klúðraði þessu.“Sjá einnig: Dregin á asnaeyrum í París Mikið gekk á þegar Björn reyndi að afhenda miðana fyrir utan leikvanginn en misvísandi skilaboð bárust um hvar ætti að sækja þá. Voru þeir miðar sem Björn var með afhentir skömmu fyrir leik á veitingastað fyrir völlinn. Margrét Katrín Guðnadóttir var ein þeirra sem fékk ekki miða fyrir sig og dætur sínar. Þau áttu að fá miðana afhenta á milli klukkan 15 og 19 en eftir mikinn eltingarleik og örvæntingu, þar sem tár féllu og lögregla þurfti að skarast í leikinn hélt hópurinn aftur upp á hótel súr í bragði, án miða. Björn segir að það upprunalega hafi hann ætlað að afhenda miðana við hótel sitt í tæka tíð fyrir leikinn en vegna þess að hann hafi þurft að redda nýjum miðum sjálfum, sem hann fékk í hendurnar í hádeginu fyrir leikinn, hafi hann ákveðið að færa afhendinguna að veitingastaðnum í grennd við völlinn. Það hafi hins vegar verið mistök, þar hafi myndast aðstæður sem hann hafi hreinlega ekki ráðið við en lögregla þurfti að lokum að skarast í leikinn.Einn af bestu vinum Björns hafði milligöngu um miðasöluna til Björns en getur ekki gefið neinar skýringar í dag Í sumar sagði Björn að miðasölustjóri UEFA vegna mótsins hafi svikið sig um miðana og framvísaði hann gögnum sem áttu að sýna fram á að UEFA hafði lofað honum miðum. UEFA kannaðist hins vegar ekki við þann aðila sem Björn var í sambandi við. Nú segist Björn ekki vita hver hafi svikið hann um miðanna og síðustu þrír mánuðir hafi farið í að komast að því. Upphaflega hafi þó vinur hans í Bandaríkjunum haft samband og boðið honum að selja miða á EM. „Einn af mínum bestu vinum í Bandaríkjunum sem hefur unnið við þessi mál býður mér að selja miða fyrir EM, fyrirtækjamiða. Við skoðuðum það en hættum við. Ævintýrið fer svo aftur af stað og þá er aftur haft samband við mig af sömu aðilum,“ segir Björn og bætir við að þeir hafi útvegað honum 120 miða á leik Íslands og Englands í Nice og þar hafi engin vandræði komið upp með miðana. Hann hafi þó engar skýringar fengið á því af hverju hann hafi verið svikinn um miðanna fyrir Frakklandsleikinn. „Það er það sem við höfum verið að vinna í síðustu þrjá mánuði, að komast að hverjir þetta eru og ná peningunum til baka frá þeim, til dæmis þessum vini mínum.“Sjá einnig:UEFA þekkir ekki milligöngumann Björns Í gær var greint frá því að Kristján Atli Baldursson eigandi netmidi.is, hafi ekki enn fengið endurgreiddar þær 5,2 milljónir króna sem hann telur Björn skulda sér vegna málsins. Kristján Atli keypti um 100 miða af Birni sem ekki allir skiluðu sér. Hann sagðist ætla með málið fyrir dómstóla. Björn segir að hann hafi tekið ákvörðun um endurgreiða fyrst þeim eintaklingum sem keypt hafi miða af sér. „Mér fannst tilhlýðilegra að láta þá ganga fyrir sem höfðu keypt miða af okkur beint en reyna svo að vinna með þeim sem voru að selja miða frá mér í endursölu í þó nokkru magni í þeim hugsunarhætti að hagnast á því að selja miðana.“Ráðavilltir og miðalausir Íslendingar við Stade de France í sumar.Mynd/Íris Björk HafsteinsdóttirSegir þetta stærstu mistök lífs síns Björn segir að honum hafi borist 335 endurgreiðslukröfur þrátt fyrir að afhent 389 af þeim 458 miðum sem hann seldi. Hann segist sitja uppi með tvöfalt tap, enda hafi hann einnig þurft að greiða sjálfur fyrir þá miða sem hann hafi útvegað á leikinn eftir að hafa áttað sig á því að upprunalegu miðarnir sem hann seldi myndi ekki berast. Eftir standi um sex milljónir en það sé háð því hvort að honum takist að sækja bætur til þeirra sem sviku hann um miðana hvort takist að endurgreiða allar kröfurnar. „Alveg eins og ég er búinn að reyna að gær og síðasta mánuði höldum við áfram að sækja á það folk sem við vorum í samskiptum við um þessa miða, um þær bætur sem mér var lofað í eftirmálunum. Það er skilyrði málsins að við náum peningunum til baka.“Sjá einnig:Miðafár, grátandi menn og misheppnuð flug Björn gengst við því að hann beri ábyrgð á þessu öllu saman og að honum þykir leitt að hafa klúðrað deginum fyrir fjölmarga Íslendinga sem gert hefðu sér ferð til Frakklands. Það sé eitthvað sem hann muni sitja uppi með til æviloka. Hann muni reyna að bæta fyrir það með því að klára að endurgreiða þeim sem hafa farið fram á það. Hann segir þó alveg ljóst að hann hafi ekki farið út gagngert til þess að svíkja fólk enda hefði hann þá aldrei mætt á Stade de France fyrir leik til þess að hitta það fólk sem keypt hafði af honum miða. „Ég veit sjálfur hversu ofboðslega mikil mistök þetta eru. Þetta eru stærstu mistök sem ég hef nokkurn tímann gert á minni ævi. Ég lifi með því á hverjum degi. Mín líðan, andlega og líkamlega, skiptir ekki höfuðmáli. Það skiptir máli að ég fór ekki gagngert til þess að svíkja fólk. Það skiptir mig máli að sem flestir komist frá þessu máli þannig að það komi eitthvað til baka frá mér.“
Tengdar fréttir Móðurfélag Sónar sver af sér tengsl við viðskiptahætti Björns Steinbekk Áfram stefnt að því að halda Sónar Reykjavík á næsta ári. 7. júlí 2016 13:17 Björn Steinbekk segist svikinn og ætlar að leita réttar síns Athafnamaðurinn segist hafa keypt miða af miðasölumanni hjá UEFA sem síðan hafi ekki borist. 4. júlí 2016 10:31 Hundruð svikin um miða Svikinn Frakklandsfari horði upp á unga menn á aldrinum 20 til 25 ára hágrátandi fyrir utan völlinn í París á meðan þjóðsöngurinn var leikinn fyrir innan. 4. júlí 2016 07:00 Mál á hendur Birni Steinbekk hrannast upp Miðasölumaðurinn alræmdi hefur nú verið kærður til lögreglu. 11. júlí 2016 14:02 UEFA þekkir ekki milligöngumann Björns Steinbekk Talsmaður UEFA kannast ekki við þann sem Björn Steinbekk sagði vera framkvæmdastjóra miðasölu UEFA og á að hafa útvegað honum miðana umdeildu. 4. júlí 2016 14:13 Mest lesið „Ég hef aldrei séð þetta svona svakalegt“ Innlent Sex ára gamalt hús í viðgerð: Ekki við flötu þökin að sakast Innlent Eitt glæsilegasta hrossaræktarbú landsins til sölu Innlent Þýskur kafbátur við Sundahöfn Innlent Strætó og jeppi skullu saman á Reykjanesbraut Innlent Munu tryggja aðgengi að kaffistofunni sem er nú bænahús Innlent Hart tekist á um umdeildar auglýsingar SFS Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið sem hann seldi Innlent Kennarar fagna því að flétta eigi kynjafræði inn í allar greinar Innlent Norðurlandamót í hermiakstri haldið á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Sex ára gamalt hús í viðgerð: Ekki við flötu þökin að sakast Þýskur kafbátur við Sundahöfn Eitt glæsilegasta hrossaræktarbú landsins til sölu Norðurlandamót í hermiakstri haldið á Íslandi „Ég hef aldrei séð þetta svona svakalegt“ Strætó og jeppi skullu saman á Reykjanesbraut Fangelsin sprungin og skoðunarferð um herskip Skólarnir í eina sæng Rannsókn í manndrápsmáli vel á veg komin Kennarar fagna því að flétta eigi kynjafræði inn í allar greinar Byrja að sekta þremur vikum eftir lok nagladekkjatímabilsins Ný öryggisúrræði taki við hjá „hættulegum“ föngum eftir afplánun Munu tryggja aðgengi að kaffistofunni sem er nú bænahús Ítalski baróninn á ekki vatnið sem hann seldi Undarlegt að „stórhættulegir menn“ gangi lausir Rifta samningum vegna gríðarlegrar fækkunar hælisleitenda Segir undarlegt að grunaðir nauðgarar gangi lausir Hart tekist á um umdeildar auglýsingar SFS Uppgötvun íslenskra vísindamanna gæti bætt viðbrögð við náttúruvá Skiljanlegt að málið veki upp miklar og erfiðar tilfinningar Fjöldi herskipa við Reykjavíkurhöfn Vagga Akureyrarflugs er á Melgerðismelum Setja þurfi skýrar reglur um sæðisgjöf á Íslandi Alvarlegt ef þrefalda á strandveiðikvóta á kostnað annarra „Fúsi, aldur og fyrri störf” á Sólheimum um helgina Meintir hópnauðgarar á bannlista skemmtistaðar Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisáreitni gegn barni Ósáttur Bandaríkjaforseti og sumarsól Vasaþjófur handtekinn í miðborginni Árásarmaðurinn trúverðugur en sá sem var stunginn misvísandi Sjá meira
Móðurfélag Sónar sver af sér tengsl við viðskiptahætti Björns Steinbekk Áfram stefnt að því að halda Sónar Reykjavík á næsta ári. 7. júlí 2016 13:17
Björn Steinbekk segist svikinn og ætlar að leita réttar síns Athafnamaðurinn segist hafa keypt miða af miðasölumanni hjá UEFA sem síðan hafi ekki borist. 4. júlí 2016 10:31
Hundruð svikin um miða Svikinn Frakklandsfari horði upp á unga menn á aldrinum 20 til 25 ára hágrátandi fyrir utan völlinn í París á meðan þjóðsöngurinn var leikinn fyrir innan. 4. júlí 2016 07:00
Mál á hendur Birni Steinbekk hrannast upp Miðasölumaðurinn alræmdi hefur nú verið kærður til lögreglu. 11. júlí 2016 14:02
UEFA þekkir ekki milligöngumann Björns Steinbekk Talsmaður UEFA kannast ekki við þann sem Björn Steinbekk sagði vera framkvæmdastjóra miðasölu UEFA og á að hafa útvegað honum miðana umdeildu. 4. júlí 2016 14:13