Smyglaði læknadópi inn á Litla-Hraun Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 29. október 2016 08:00 Bróðir Ásdísar Höllu sem nú er fallinn frá, Sonny, var vistaður á Litla-Hrauni. Hún heimsótti hann að beiðni móður sinnar. Mynd/aðsend
Ásdís Halla Bragadóttir rekur sögu móður sinnar, Sigríðar S. Hjelm ásamt sinni eigin í nýrri bók, Tvísaga. Hér er birtur kafli úr bók hennar sem fjallar um heimsókn hennar til bróður hennar heitins á Litla-Hraun. Mamma fann til með fólki sem glímdi við kvíða, áhyggjur og vanlíðan – en kunni ekki að rétta því hjálp nema með þeirri aðferð sem hún sjálf hafði notað. Henni þótti því ekkert sérstaklega athugavert við það að smygla róandi lyfjum til Sonna á Litla-Hrauni – eða að minnsta kosti lét hún sig hafa það þegar hann grátbað um þau. En að því kom að hún gat ekki staðið við loforð sitt um að koma til hans lyfjum, hún treysti sér ekki í heimsóknina sem búið var að skipuleggja. „Ég er eitthvað svo slöpp, komin með bullandi mígreni og ég treysti mér ekki til að fara á Litla-Hraun á morgun.“ „En verður Sonny ekki svekktur – ég var búin að lofa að lána honum plötuna sem þið gáfuð mér í jólagjöf og ég var líka búin að kaupa kol til að teikna með.“ „Endilega farðu bara ein, Halla … það er of seint fyrir greyið að skrá einhvern annan í heimsókn og ömurlegt fyrir hann ef enginn kemur á heimsóknardegi.“ Ég samþykkti það enda hafði ég oft farið með mömmu og ég var farin að þekkja ferlið. Vanalega fórum við með Akraborginni til Reykjavíkur, þaðan sem við tókum rútuna frá BSÍ á Litla-Hraun. Alltaf vorum við með einhvern glaðning með okkur, bækur, liti, pappír, sælgæti eða annað sem hann hafði beðið um. „Ertu þá ekki til í að gera mér greiða?“ spurði mamma. „Hvað?“ „Ég var búin að lofa Sonna að fara með róandi lyf til hans. Hann er með svo mikinn kvíða þarna innilokaður. Það er enginn geðlæknir og sálfræðingurinn sést varla.“ Ég vissi ekki að þetta hefði staðið til og mér þótti fyrirspurnin óþægileg. Þegar ég svaraði engu hélt mamma áfram: „Hvernig á hann að geta komið til baka betri maður þegar það er ekkert gert fyrir hann?“ Það kom hik á mig og ég spurði hvers vegna hann fengi ekki lyfin í fangelsinu. „Þeir vilja ekki leyfa honum það því þeir skilja ekki hvað honum líður illa. Hann hefur alla tíð glímt við kvíða og þegar hann er verstur missir hann stjórn á sér og er settur í einangrun sem hann hatar og vítahringurinn verður enn verri. Hann getur eiginlega ekki beðið eftir þessu því hann er líka í skuld við strák sem situr inni með honum og hann er dauðhræddur við. Hann er búinn að hóta að berja Sonna ef hann borgar ekki með róandi.“ Mamma sótti appelsínugula dós í veskið sitt sem innihélt litlar hvítar töflur. Ég áttaði mig á því að þetta væru Dísur, sem ekki einungis mamma hafði brutt heldur húsmæður hér og þar um bæinn. Ég vissi líka að þær voru misnotaðar af fíklum og þóttu ágætis gjaldmiðill á Litla-Hrauni. „Settu þetta inn á þig því fangaverðirnir taka þetta af þér ef þeir finna þær.“ Áður en ég fór að hátta undirbjó ég hvernig ég gæti falið töflurnar þannig að sem minnst færi fyrir þeim. Ég hafði áhyggjur af því að dósin væri of stór og að það heyrðist of mikið í töflunum þegar þær hristust í henni. Ég fór fram í eldhús sótti hvítan kaffipoka sem ég setti töflurnar í og braut upp á þannig að þær dyttu ekki úr honum. Morguninn eftir vaknaði ég snemma til að ná Akraborginni suður, klæddi mig og setti kaffipokann með töflunum inn undir nærbuxurnar. Hljómplötuna og kolin geymdi ég í plastpoka og hélt af stað. Þegar ég kom í bæinn gekk ég frá Akraborginni að BSÍ til að fara með rútunni á Litla-Hraun. Farþegarnir voru fáir, sumir að fara í Hveragerði, aðrir á Selfoss og einhverjir á Stokkseyri og Eyrarbakka. Eftir því sem nær dró Litla-Hrauni jukust áhyggjur mínar. Frá því að ég mundi eftir mér hafði mamma predikað um mikilvægi þess að ég héldi mig á beinu brautinni. „Það er svo hrikalegur alkóhólismi í fjölskyldunni að þú verður að halda þig frá víni. Blóðfaðir þinn var alki og þú sérð hvaða vandræði strákarnir hafa komið sér í. Þú verður að muna þrennt,“ sagði hún. Þetta þrennt var að ég mætti aldrei stela, ljúga og nota vímuefni – sígarettur og vín voru meðtalin. Reglunum þremur ætti ég að fylgja í blindni. Þar að auki var sú meginregla í heiðri höfð að ég væri ekki í slæmum félagsskap. Ætti aldrei að leika við krakka sem væru í einhverju rugli og reglulega kom það upp að ég hætti að sækja í vinkonur ef mér fannst þær fara út af beinu brautinni. Í Svíþjóð lokaði ég á fyrstu vinkonurnar sem ég eignaðist þegar þær báðu mig um að reykja með þeim. Á Akranesi hætti ég að vera með nokkrum góðum vinkonum þegar ég áttaði mig á því að þær höfðu staðið í búðarhnupli á meðan ég var inni í búðinni með þeim en gerði mér ekki grein fyrir því hvað hafði verið í gangi fyrr en þær sýndu mér þýfið fyrir utan búðina. Smygl á læknadópi inn á Litla-Hraun var því alls ekki í samræmi við það hlutverk sem ég sinnti innan fjölskyldunnar og þann vilja sem ég hafði til að vera heiðarleg og heilbrigð. Ég vissi að það væri rangt og í raun mjög alvarlegt. Ef upp um mig kæmist gæti ég lent í hrikalegum vandræðum. Eyðilagt svo margt sem ég var búin að hafa mikið fyrir. En hversu alvarlegt væri það ef fangavörðurinn fyndi töflurnar á mér? Myndi hann láta nægja að taka þær af mér? Yrði ég ákærð? Og gæti þetta haft alvarlegar afleiðingar til lengri tíma?ÃsdÃs Halla BragadóttirRútan stoppaði fyrir framan Litla-Hraun og ég gekk út ásamt ungri konu. Við urðum samferða að hliðinu þar sem við gerðum vart við okkur í dyrasíma. Eftir að við sögðum til nafns og hverja við værum að heimsækja opnaðist hliðið og við fórum inn fyrir. Þegar hliðið skall aftur með látum hvolfdist óttinn yfir mig. Skjálfandi á beinunum gekk ég yfir opna svæðið að sjálfri byggingunni, þar sem fangarnir dvöldu. Ég fann fyrir hörðum kaffipokanum sem nuddaðist við húðina undir nærbuxunum og skyndilega fannst mér skrjáfa svo hátt í honum að það hlytu allir að heyra. Hjartað hamaðist, ég þornaði upp í munninum, hendurnar urðu ískaldar og ég gerði mér grein fyrir að það færi ekki á milli mála í augum fangavarðanna að þarna færi dauðskelkuð 16 ára stelpa. Ég mjakaðist nær gestainnganginum þar sem ég vissi að gerð var leit á gestum áður en þeir hittu fangana. Dyrnar opnuðust, ég gekk inn á Litla-Hraun og þung, kuldaleg útidyrahurðin skall aftur með látum. Fangavörðurinn horfði alvarlegur á mig og ég vissi að óöryggi mitt myndi kalla fram grunsemdir en nú var of seint að losa mig við töflurnar og það eina sem ég gat gert var að vona hið besta.“Smygl á dópi í fjölskylduheimsóknum á Litla-Hraun Halldór Valur Pálsson forstöðumaður á Litla Hrauni segir börn sem koma í heimsókn á Litla-Hraun ávallt á ábyrgð forráðamanna. Barn komi aldrei eitt í heimsókn í dag og því geti það ekki borið ábyrgð á því sem það kemur með inn í fangelsið. Tilvik þar sem aðstandandi barns ber slíka ábyrgð hafa komið upp. „Ef það kemur í ljós að aðstandandi barns er staðinn að því að bera inn í fangelsið eitthvað sem er ólöglegt þegar barn er með í för er það að sjálfsögðu tilkynnt til lögreglu og barnaverndaryfirvalda. Slík tilvik hafa komið upp. Þá eru börn fanga oft yfir 18 ára og þá er tekið á því í samvinnu við lögreglu,“ segir Halldór Valur. Hann segir að sér beri að skipuleggja aðstæður þannig að börn geti komið með í heimsóknir og að þeim sé sýnd nærgætni. Fangi sem afpláni í opnu fangelsi geti fengið heimsóknir frá fjölskyldu eða vinum eigi sjaldnar en vikulega ef aðstæður leyfa. Það teljist gagnlegt í betrun hans. „Forstöðumaður getur ákveðið að heimsóknir tiltekinna manna fari fram undir eftirliti starfsmanns,“ bendir hann á og tiltekur nánar að það megi setja heimsóknum enn þrengri skorður með góðum rökstuðningi. Þá er heimilt að leita á þeim sem heimsækja fanga og skoða það sem farið er með til fanga. „Í lögunum er reynt að gæta sem allra mest að hagsmunum barnsins og er í raun talsverð vinna fólgin í því að koma með barn í heimsókn í fangelsi, sýna fram á að viðkomandi sé forsjáraðili eða hafa skriflegt samþykki forsjáraðila,“ segir Halldór Valur.
Mest lesið Þórdís slær á slúðursögurnar og þykir miður að fjallað sé um þær á Íslandi Lífið Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Tónlist Þakklátur starfsfólki Landspítalans eftir mótorhjólaslys Lífið Danakonungur sagður hafa daðrað við Þórdísi Lífið Sænskir áhrifavaldar hrifnir af klæðaburði íslenskra kvenna Lífið Tilkynna óléttu tveimur mánuðum eftir brúðkaup Lífið Hrekkjavökumyndir til að hafa í huga fyrir kvöldið Bíó og sjónvarp Björgólfur Thor selur 200 fermetra glæsiíbúð við höfnina Lífið Eyddi Youtube síðu sonarins Lífið „Hæfileikarnir hafa ekkert með kílóin að gera“ Lífið Fleiri fréttir Þórdís slær á slúðursögurnar og þykir miður að fjallað sé um þær á Íslandi Sænskir áhrifavaldar hrifnir af klæðaburði íslenskra kvenna Sveppi og Karen Björg skrifa leikna þætti um Orra óstöðvandi Tilkynna óléttu tveimur mánuðum eftir brúðkaup Björgólfur Thor selur 200 fermetra glæsiíbúð við höfnina Eyddi Youtube síðu sonarins Prestur og brauðterta í tíu þúsund manna fermingarveislu FM95BLÖ Þakklátur starfsfólki Landspítalans eftir mótorhjólaslys „Hæfileikarnir hafa ekkert með kílóin að gera“ Vekur athygli á einkennum heilaslags í minningu móður sinnar Danakonungur sagður hafa daðrað við Þórdísi Játning í Svörtum söndum Tóm hamingja hjá forsetanum Hafi áður tekið of stóran skammt Er einfaldlega að finna út úr kynhneigð sinni Kynntust í fyrri seríunni Unnur Eggerts og Travis eiga von á öðru barni Skylduð til að bæta Baltasarsdóttir við „Verð hálf abbó þegar steggjamyndböndin eru sýnd“ „Ég sparka bara í þig á eftir“ Sögð hafa slitið trúlofuninni Er endaþarmsörvun bara fyrir homma? Teri Garr látin Gerður í Blush gladdi konur í Köben Magnað að aðdáendur flúri textana á sig Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur Kenningin sem knúði valdaránstilraunina Støre lét sig ekki vanta í Sundhöllina Bündchen 44 ára og ólétt Töpuðu dómsmáli vegna húss sem reyndist fullt af myglu Sjá meira