May fékk fimm mínútur til að ræða útgöngu Breta Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. október 2016 11:00 Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, kemur til fundar við aðra leiðtoga Evrópusambandsins í Brussel Fréttablaðið/AFP
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, fékk aðeins fimm mínútur til að gera leiðtogum annarra Evrópusambandsríkja grein fyrir áformum sínum um útgöngu Bretlands. Á tveggja daga leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel, sem hófst á fimmtudag og lauk í gær, vildu hinir leiðtogarnir lítið ræða við hana um þetta mál. May hafði gert ráð fyrir því að ræða útgöngu Bretlands yfir hádegisverði á fimmtudag, en að sögn breska dagblaðsins The Independent var hún látin bíða þangað til klukkan var orðin eitt. Það var „löngu eftir að þjónarnir voru farnir að bíða eftir því að fá að taka diskana af borðunum“ er haft eftir sjónarvotti á fréttavef The Independent. Þegar hún lauk svo máli sínu eftir fimm mínútur, þá bað enginn hinna leiðtoganna um orðið til að svara henni. Skýringin er sögð sú að formlegar viðræður um útgöngu Breta megi ekki hefjast fyrr en Bretar hafa virkjað 50. grein stofnsáttmála Evrópusambandsins með því að óska formlega eftir útgöngu. Það hefur Theresa May sagt að muni gerast í mars á næsta ári. Eftir það tekur við tveggja ára samningsferli, þar sem samið verður um skilmála útgöngunnar.
Mest lesið Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent Sérstök öryggisstofnun í startholunum Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira