Sebastian Vettel hefur tapað þriðja sætinu sem hann hlaut í mexíkóska kappakstrinum í gær. Hann fékk tíu sekúndna refsingu fyrir reikult aksturslag þegar hann varðist Daniel Ricciardo.
Ricciardo fær því þriðja sætið eftir að liðsfélagi hans hjá Red Bull, Max Verstappen sem raunverulega kom í mark í þriðja sæti missti það til Vettel.
Vettel gerðist sekur um að færa sig undir hemlun, sem var gert óheimilt fyrir bandaríska kappaksturinn.
Vettel verður því fimmti í keppninni, Verstappen fjórði og Ricciardo þriðji eins og áður segir.
Ricciardo sagði sjálfur eftir keppnina að Vettel ætti ekki skilið að standa á verðlaunapallinum og það virðist sem dómarar keppninnar hafi verið á sama máli.
Sjá einnig: Ricciardo: Vettel á ekki skilið að standa á verðlaunapallinum
Sebastian Vettel tapar þriðja sætinu

Tengdar fréttir

Ricciardo: Vettel á ekki skilið að vera á verðlaunapallinum
Lewis Hamilton minnkaði forskot Nico Rosberg niður í 19 stig í heimsmeistarakeppni ökumanna með því að vinna mexíkóska kappaksturinn. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Rosberg: Möguleikar mínir á morgun eru fínir
Lewis Hamilton náði sínum tíunda ráspól á tímabilinu í dag. Hann tók þar með stórt skref í áttina að því að minnka forskot Nico Rosberg í heimsmeistarakeppni ökumanna. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Lewis Hamilton vann í Mexíkó | Spennan eykst
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í mexíkóska kappakstrinum. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Max Verstappen á Red Bull varð þriðji í mark.