Tíu skraufþurrar mínútur voru dýrkeyptar fyrir lið Alfreðs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2016 19:03 Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. Vísir/Getty
Útivallarvandræði Alfreðs Gíslasonar og lærisveina hans í THW Kiel í Meistaradeildinni héldu áfram í kvöld. Kiel mistókst að koma með tvö stig heim frá Póllandi úr leik á móti næstneðsta liði riðilsins. Orlen Wisla Plock vann þá tveggja marka heimasigur á Kiel, 24-22, en þýska liðið var marki yfir í hálfleik. Kiel hefur þar með tapað þremur af fjórum útileikjum sínum í Meistaradeildinni Þetta leit ágætlega út fyrir liðsmenn Kiel þegar þeir voru tveimur mörkum yfir í seinni hálfleik en þá skoraði Kiel ekki í tíu mínútur og á meðan náði Wisla Plock þriggja marka forskoti sem strákarnir hans Alfreðs náðu aldrei að brúa. Þetta var fyrsti sigur Wisla Plock í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vetur en liðið var bara með eitt stig eftir fyrstu fimm leiki sína. Marko Vujin var markahæstur hjá Kile með 6 mörk en Raúl Santos skoraði 4 mörk. Sime Ivic skoraði 6 mörk fyrir Wisla. Kiel lenti 4-2 undir eftir níu mínútna leik en Pólverjarnir breyttu þá stöðunni snögglega með því að skora þrjú mörk í röð. Leikmenn Wisla Plock voru með frumkvæðið þangað til Kiel komst aftur yfir í 10-9 en Kiel var síðan einu marki yfir í hálfleik, 13-12, eftir að hvorugu liðinu tókst að skora á síðustu fjórum mínútum hálfleiksins. Kiel náði strax tveggja marka forystu í upphafi seinni hálfleiks en liðið var samt ekki lengi skrefinu á undan. Pólverjarnir skoruðu fimm mörk í röð og breyttu stöðunni úr 15-17 í 20-17 þar sem Kiel skoraði ekki í tíu mínútur. Alfreð tók þá leikhlé þegar níu mínútur voru eftir og Kiel minnkaði muninn strax í eitt mark. Nær komust leikmenn Kiel ekki og liðsmenn Wisla Plock lönduðu sigri. Spennan hélst út leikinn en þýska liðið náði ekki að bjarga stigi.
Handbolti Mest lesið Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“ Fótbolti Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik Fótbolti Stefnir í stríð á milli tveggja af stærstu handboltafélögum heims Handbolti Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Æfir hjá gamla félagi föður síns Fótbolti Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Fótbolti Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli Fótbolti Stefán Árni stríddi Tomma með paparassa myndbandi frá sumrinu Körfubolti Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi Fótbolti Fleiri fréttir Stefnir í stríð á milli tveggja af stærstu handboltafélögum heims Valsmenn rufu fjörutíu marka múrinn Framarar áfram á sigurbraut í Lambhagahöllinni Ómar Ingi og Gísli Þorgeir markahæstir í tapi Toppliðið tapaði og Afturelding fór á toppinn Eyjamenn sigu fram úr í lokin Bjarki Már með þrjú mörk í stórsigri Veszprém „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Sjá meira