Innlent

Sjötíu sótt um hæli í nóvember

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Að meðaltali sækja 2-3 hælisleitendur um vernd hér á landi á dag. Fyrstu viku nóvembermánaðar hafa um 70 manns sótt um hæli og er heildarfjöldi umsókna á árinu nú um 830 talsins. Útlendingastofnun gerir ráð fyrir enn fleiri hælisleitendum til landsins í kvöld.  

„Við tókum á móti tvö hundruð og einni umsókn í október og erum komin í 830 umsóknir það sem af er ári,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, staðgengi forstjóra Útlendingastofnunar.

Rúmur helmingur þeirra sem sóttu um hæli í október voru makedónskir ríkisborgarar, að stórum hluta fjölskyldur.

Ekkert lát virðist vera á fjölgun umsækjenda um vernd en um 70 komu til landsins í fyrstu viku nóvembermánaðar. Útlit er því fyrir að fjöldinn í lok árs fari fram úr spá Útlendingastofnunar fyrir árið 2016. Fjöldinn sé farin að taka verulega á Útlendingastofnun.

„Þetta haust hefur verið með mjög skarpri aukningu. Ef þetta heldur svona áfram förum við yfir þúsund umsóknir á þessu ári,“ segir Þorsteinn.

Síðastliðinn sunnudag komu rúmlega 40 hælisleitandur í einni vél til landsins frá Ungverjalandi og sóttu um hæli.  Allir einstaklingarnir eru frá Balkan-ríkjunum og dvelja á hótelum eða gistiheimilum enda  húsnæðisúrræði Útlendingastofnunar yfirfull.

í dag dvelja um 200 hælisleitendur á hótelum og gistiheimilum á Íslandi. „Það er orðið erfitt að útvega gistingu og það er ekki það mikið af föstum rýmum hjá okkur. Þegar aukningin er svona mikil þurfum við að vera dugleg við að finna önnur úrræði. Undanfarið hefur það verið mikið á hótel og gistiheimili,“ segir Þorsteinn.

Þorsteinn segir að Útlendingastofnun sé viðbúin því að fleiri sæki um hæli í kvöld. „Við höfum séð það að sunnudagar og miðvikudagar eru mjög stórir dagar hjá okkur sem tengist ákveðnum flugleiðum hér til lands sem tengjast þessu landsvæði í Evrópu. Það er að segja Balkanríkin,“ segir Þorsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×