Neville: Smalling myndi hlaupa í gegnum vegg en Shaw þarf að þroskast Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2016 08:00 José Mourinho gagnrýndi varnarmenn sína. vísir/getty
Gary Neville, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, segir það koma sér á óvart að José Mourinho hafi gagnrýnt Chris Smalling svona harkalega fyrir að spila ekki leikinn á móti Swansea um helgina en segir Luke Shaw aftur á móti þurfa að þroskast betur líkamlega og andlega. Mourinho lét Smalling og Shaw heyra það eftir að þeir gátu ekki spilað í 3-1 sigurleik Manchester United gegn Swansea á sunnudaginn. Hann efaðist um vilja varnarmannanna til að leggja allt í sölurnar fyrir Manchester United.Sjá einnig:Southgate kemur Smalling og Shaw til varnar eftir ummæli Mourinho „Menn verða að gera allt fyrir liðið. Það er munur á hugrökkum leikmönnum, sem gera allt fyrir liðið, og þeirra sem kvarta yfir minnsta sársauka,“ sagði Mourinho en hvorugur þeirra var valinn í enska landsliðið vegna meiðslanna. Gary Neville vann með Chris Smalling þegar hann var aðstoðarþjálfari enska landsliðsins og segist ekki hafa upplifað Smalling sem svona leikmann áður. „Mér finnst erfitt að trúa neinu öðru en Chris sé algjörlega einbeittur á það að vera mættur út á æfingavöllinn á hverjum einasta degi. Ég er ekki alveg viss um hvað José er að sjá en hann er knattspyrnustjóri félagsins og gerir það sem honum finnst best,“ segir Neville. „Eftir að hafa unnið með Smalling í fjögur ár get ég ekki annað sagt en að hann er traustins verður og heilsteyptur strákur. Fyrir mér er hann leikmaður sem myndi hlaupa í gegnum vegg fyrir þig. Þess vegna kemur þetta mér á óvart.“ „Luke Shaw er flóknari karakter, aftur á móti. Hann er ungur og þarf að þroskast bæði líkamlega og andlega,“ segir Gary Neville.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Enski boltinn Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Enski boltinn Skipta dómurum út fyrir gervigreind á sögufræga mótinu Sport Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti „Áægður með að hún skuli hafa tekið af skarið og látið til sín taka“ Körfubolti Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Haukar unnu torsóttan sigur gegn Aþenu Körfubolti Glódís kemst ekki á verðlaunahátíðina: „Mér finnst þetta bara fáránlegt“ Fótbolti Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Fótbolti Magnaður sigur City á Barcelona og Sædís mætti Juventus Fótbolti Fleiri fréttir Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ Sjá meira